Rúmlega 130 börn bíða greiningar 9. september 2004 00:01
Um 80 börn á þroskahömlunarsviði og 50 - 60 börn á einhverfusviði bíða eftir greiningu á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. "Hluti þeirra er búinn að fá úthlutað plássi á næstu sex mánuðum en það bætir alltaf í," sagði Stefán J. Hreiðarsson, forstöðumaður stöðvarinnar. "Við höfum því kosið að nálgast þetta frekar út frá biðtímanum. Þannig að ef grunnskólabarn er grunað um þroskahömlun, þá erum við að tala um biðtíma allt upp í tvö ár." Nýtt húsnæði í Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, sem er 100 fermetrar að stærð og var tekið í notkun í gær, breytir mjög miklu fyrir starfsemina, að sögn Stefáns. Þar verður fagsvið þroskahamlanna starfrækt, svokölluð snemmtæk íhlutun, sem felst í vinnu með ung, fötluð börn og foreldra þeirra. Það rými sem losnaði verður nýtt til bættrar aðstöðu fyrir einhverf börn. Þá rýmkast einnig um iðjuþjálfun, sem búið hefur við mjög þröngan kost. "Við fáum í vaxandi mæli börn með einhverfu sem eru í mjög markvissri þjálfun," sagði Stefán. "Þjálfarar, foreldrar, aðstandendur og aðrir sem koma að máli barnsins horfa þá á okkar þjálfara og læra." Spurður hvað ylli fjölgun barna sem þyrfti á aðstoð Greiningar- og ráðgjafarstöðvarinnar að halda sagði Stefán að hvað varðaði einhverfu væri fjölgun á alþjóðamælikvarða viðurkennd. Menn veltu vöngum yfir hvort það væru einhverjir þættir í umhverfinu sem ættu þar hlut að máli. Að hluta til kæmi til meiri skilningur og betri greiningaraðferðir, sem væri forsenda þess að hægt væri að beita sérhæfðum aðferðum snemma, til þess að koma í veg fyrir eða minnka vandamál einstaklinganna seinna meir. "Sama máli gegnir um þroskahömlum. Hjá fullorðnum þroskaheftum, og einkum þeim sem standa býsna vel innan þroskahefta hópsins, er há tíðni af geðrænum erfiðleikum á fullorðinsárum. Menn leggja því upp með að gera þessa vönduðu greiningu, leita þá ekki bara að nafni á fötluninni heldur getu barnsins í umhverfinu og finna geðræn einkenni snemma, séu þau til staðar. Það er aukin áhersla, með aukinni þekkingu, á að við séum raunverulega að reyna að vinna forvarnarstarf til framtíðar." Reikna má með að um 80 börn í hverjum árgangi standi það höllum fæti í almennri greind, að hætta sé á þroskahömlun, að því er Stefán sagði. Hvað varðar aðrar þroskaraskanir má gera ráð fyrir öðrum eins hóp að minnsta kosti í hverjum árgangi. Um 20 - 25 börn í hverjum árgangi greinast með einhverfu eða einhverfueinkenni. Niðurstaða nefndar á vegum félagsmálaráðuneytisins, sem lá fyrir í fyrra gerði ráð fyrir að fjölga þyrfti sérfræðingum Greiningar- og ráðgjafarstöðvarinnar um 8 stöðugildi á næstu fjórum árum til að anna þörfinni. Síðan hefur stöðin fengið eitt og hálft stöðugildi.
Fréttir Innlent Mest lesið „Það er hetja á Múlaborg“ Innlent Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Innlent Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Innlent Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Erlent Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið Innlent Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Innlent „Réttu spilin og réttu vopnin“ Innlent Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Innlent Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Erlent Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Innlent Fleiri fréttir Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið „Réttu spilin og réttu vopnin“ „Það er hetja á Múlaborg“ Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Faðir á Múlaborg í áfalli, leiðtogafundur í Washington og símtöl sakbornings Stjórnvöld þurfi að bregðast við veðmálavandanum Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Vesturbæjarlaug aftur lokað vegna viðgerðar Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Göngu- og hjólabrú við Dugguvog opnuð síðdegis í dag Tollum Evrópusambandsins frestað um óákveðinn tíma Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Eldur á Kleppsvegi Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Ögurstund í Washington, spilavandi ungra karla og aukin gæsla á Menningarnótt Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Í gæsluvarðhaldi fram í september Fullir í flugi Einn handtekinn vegna líkamsárásar og annar vegna innbrots RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Loka Miðfjarðará með grjóti og segja stjórnvöld hafa dregið lappirnar Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Sjá meira