Stefán og Auðun koma inn 30. ágúst 2004 00:01
Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, landsliðsþjálfarar í knattspyrnu, tilkynntu í gær tuttugu manna hóp fyrir leikina gegn Búlgörum og Ungverjum í forkeppni heimsmeistaramótsins. Leikurinn gegn Búlgörum verður á Laugardalsvelli á laugardaginn kemur en leikurinn gegn Ungverjum verður í Búdapest á miðvikudaginn eftir viku. Logi og Ásgeir völdu tuttugu leikmenn en aðeins átján mega vera á skýrslu. Óvíst er hvort Pétur Hafliði Marteinsson og Rúnar Kristinsson geti leikið með vegna meiðsla. "Pétur er í sjúkrameðferð og við fáum niðurstöðu úr henni á næstu dögum og metum það svo hvort hann geti verið með. Það er líklegra að Rúnar verði með en þó er tæpt á að hann verði með í leiknum gegn Búlgörum," segir Logi Ólafsson en Rúnar meiddist í leik með Lokeren um helgina. Stefán og Auðunn Stefán Gíslason úr Keflavík og Auðunn Helgason, sem leikur með sænska liðinu Landskrona, koma inn í landsliðið á ný. "Við vorum sérstaklega ánægðir með Stefán í upphafi mótsins og hann var lengi inni í myndinni fyrir leikina á Manchester-mótinu. En þótt gengi Keflavíkur hafi verið upp og niður í deildinni þá vitum við hvað býr í Stefáni. Hann er ungur framtíðarmaður," segir Logi. Stefán hefur leikið tvo landsleiki, gegn Kúveit og Sádí-Arabíu árið 2002. Auk Stefáns kemur Auðunn Helgason, sem leikur með Landskrona, inn í liðið á ný. Auðunn hefur leikið 29 landsleiki og skorað í þeim eitt mark. Búlgarar erfiðir Búlgarar léku á Evrópumótinu í Portúgal í sumar, töpuðu öllum leikjunum og skoruðu aðeins eitt mark. Þeir sýndu þó oft á tíðum ágæta takta. Logi býst við erfiðum leik á laugardaginn. "Við fylgdumst með þeim á Evrópumótinu og sáum að þeir hafa mjög gott lið. Þeir töpuðu að vísu fyrsta leiknum 5-0 og áttu erfitt uppdráttar á mótinu eftir það," segir Logi. Hristo Stoichkov, einn frægasti knattspyrnumaður Búlgara, hefur tekið við stjórn liðsins. Undir hans stjórn gerði liðið 1-1 jafntefli við Íra á útivelli. "Það eru verulega góðir leikmenn í þessu liði, til dæmis Berbatov hjá Leverkusen sem skoraði tvö mörk á móti Bayern München um síðustu helgi. Þótt þeim hafi gengið illa á Evrópumótinu hafa þeir allan hug á að gera betur nú," segir Logi. Leikurinn gegn Búlgörum verður sem fyrr segir á laugardaginn kemur og hefst klukkan fjögur. Riðillinn í forkeppni HM: Búlgaría Ísland Króatía Malta Svíþjóð Ungverjaland Leikmannahópur Íslands: Árni Gautur Arason Vålerenga Kristján Finnbogason KR Rúnar Kristinsson Lokeren Arnar Grétarsson Lokeren Hermann Hreiðarsson Charlton Þórður Guðjónsson Bochum Helgi Sigurðsson AGF Århus Brynjar B. Gunnarsson Watford Arnar Þór Viðarsson Lokeren Pétur Hafliði Marteinsson Hammarby IF Eiður Smári Guðjohnsen Chelsea Heiðar Helguson Watford Auðun Helgason Landskrona Jóhannes K. Guðjónsson Leicester Indriði Sigurðsson Genk Ólafur Örn Bjarnason Brann Gylfi Einarsson Lilleström Veigar P. Gunnarsson Stabæk Kristján Ö. Sigurðsson KR Stefán Gíslason Keflavík Leikir Íslands: Á árinu: 4. sept. Ísland - Búlgaría 8. sept. Ungverjaland - Ísland 09. okt. Malta - Ísland 13. okt. Ísland - Svíþjóð 2005: 26. mars Króatía - Ísland 04. jún. Ísland - Ungverjaland 08. jún. Ísland - Malta 03. sep. Ísland - Króatía 07. sep. Búlgaría - Ísland 12. okt. Svíþjóð - Ísland
Íslenski boltinn Mest lesið Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Handbolti Hetja Englands á EM: „Fyrir fjórum árum var ég krakki að kasta boltum til þeirra“ Fótbolti Uppgjörið: Lech Poznan - Breiðablik 7-1 | Afhroð í Póllandi Fótbolti „Meiri áhrif frá Arnari Gunnlaugssyni heldur en Svíþjóð“ Fótbolti Hefur trú á að Rashford láti ljós sitt skína í Katalóníu Enski boltinn Ballið ekki búið hjá Breiðabliki Fótbolti Dagskráin í dag: Skytturnar fá drengina frá Mílanó í heimsókn Sport Uppbótartíminn: „Þetta tók níu sekúndur“ Íslenski boltinn Enskar í úrslit eftir dramatík Fótbolti „Við viljum meira“ Fótbolti Fleiri fréttir Gagnrýnd af forsetanum fyrir að vilja sofa hjá strákunum á EM Ballið ekki búið hjá Breiðabliki Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn „Meiri áhrif frá Arnari Gunnlaugssyni heldur en Svíþjóð“ Hetja Englands á EM: „Fyrir fjórum árum var ég krakki að kasta boltum til þeirra“ Hefur trú á að Rashford láti ljós sitt skína í Katalóníu Dagskráin í dag: Skytturnar fá drengina frá Mílanó í heimsókn „Við viljum meira“ Uppbótartíminn: „Þetta tók níu sekúndur“ Enskar í úrslit eftir dramatík Uppgjörið: Lech Poznan - Breiðablik 7-1 | Afhroð í Póllandi Palace áfrýjar og vill spila í Evrópudeildinni KR í markmannsleit eftir meiðsli Davíð Snorri aðstoðar Frey og félaga Eigandi Cowboys gerir stjörnurnar sínar brjálaðar Mætti með bikarinn á frumsýningu Happy Gilmore Víðir fór holu í höggi Rakarastofa og sjónvarp fyrir alla í flottasta búningsklefa heims Sögunni endalausu um Gyökeres loksins að ljúka Borgarstjórinn forðast að ræða hótanir Trumps Fyrrum leikmaður Liverpool og Chelsea látinn „Fjölmennasti leikur sem Breiðablik hefur spilað“ Frá Inter til Serbíu og gæti mætt Blikum Ekki hissa á því að Horner hafi verið rekinn Hrósuðu Túfa í hástert: „Á einhvern hátt heldur maður með honum“ Búinn að eyða yfir tuttugu milljörðum en segist vanta meira „Við erum ekki á góðum stað“ Þurfa að losa leikmenn til að skrá Rashford „Ég líki þessu svolítið við Blikana“ Hálffimmtug Venus snéri aftur með sigri Sjá meira