Sport

Unnu Austurríki á lokasprettinum

Karlalandsliðið í körfubolta skoraði átta síðustu stigin og tryggði sér sætan sigur á Austurríki, 74-71, á lokamínútum annars leik síns á Pannon-æfingamótinu í Ungverjalandi í gær. Austurríkismenn leiddu mestan hluta leiksins og höfðu meðal annars sjö stiga forskot í hálfleik, 37-45 og fjögurra stiga forskot fyrir síðasta leikhlutann, 58-62. Íslensku strákarnir komu sterkir inn í lokin og unnu góðan sigur eftir slæmt tap í fyrsta leiknum gegn Póllandi í fyrsta leik sínum. Íslenska liðið var fjórum stigum undir fyrir síðasta leikhlutann, 58-62, en hann unnu íslensku strákarnir með sjö stigum, 16-9, og hreinlega lokuðu vörninni. Íslensku strákarnir komust fyrst yfir í stöðunni 72-71. Jón Nordal Hafsteinsson átti frábæra innkomu af bekknum og skoraði 19 stig á aðeins 26 mínútum. Hann hitti úr 8 af 9 skotum sínum og austurríska liðið lenti í vandræðum með hann í vörn og sókn. Þá bætti félagi hans og jafnaldri úr Keflavíkurliðinu, Magnús Þór Gunnarsson við 17 stigum og þeir félagar voru því með 36 stig saman í þessum leik. Íslenska liðið lék í annað sinn á fjórum dögum við Austurríkismennina en þjóðirnar spiluðu vináttulandsleik á miðvikudagskvöldið og íslenska liðið tapaði þeim leik með fimmtán stigum, 81-96. Það var því frábært að sjá strákanna koma til baka í dag og vinna góðan sigur. Stig íslenska liðsins gegn Austurríki: Jón Nordal Hafsteinsson 19 Magnús Þór Gunnarsson 17 Jakob Sigurðarson 13 Friðrik Stefánsson 9 Hlynur Bæringsson 7 Páll Kristinsson 4 Eiríkur Önundarson 2 Páll Axel Vilbergsson 2 Fannar Ólafsson 1



Fleiri fréttir

Sjá meira


×