Sport

Skagamenn eru úr leik

Skagamenn biðu lægri hlut gegn sænska liðinu Hammarby, 1-2, í forkeppni Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Svíarnir báru einnig sigur úr býtum í fyrri leiknum ytra, þá 2-0 og því samanlagt 4-1. Skagamenn geta þó alveg gengið með höfuðið hátt frá þátttöku sinni í Evrópukeppninni þetta árið. Eftir tapið í Svíþjóð var vitað að möguleikar Skagamanna væru frekar litlir en þeir fuku algerlega út í veður og vind á 18. mínútu en þá leit fyrra mark Svíanna dagsins ljós. Það gerðist síðan ekki margt markvert þangað til Skagamenn jöfnuðu leikinn frekar með glæsilegu marki frá Guðjóni heiðari Sveinssyni - afgreiddi boltann viðstöðulaust í markið með skoti frá vítateig. Svíarnir settu síðan annað mark sitt nokkrum sekúndum fyrir lok fyrri hálfleiks. Í það heila gerðist ekki mikið fleira markvert í fyrri hálfleik og þetta fyrra mark Svíanna tók allt blóðbragð af tönnum leikmanna beggja liða. Síðari hálfleikur var einnig frekar daufur en sæmilegar rispur litu þó dagsins ljós en ekki mikið af opnum færum. Pétur „okkar“ Marteinsson lék ekki með Hammarby að þessu sinni vegna meiðsla. Öll pressan fór af þeim Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði Skagamanna, var raunsær eftir leik: „Það var svo sem vitað að fyrirfram að þessi slagur yrði erfiður en þetta fyrra mark þeirra kom á þægilegum tíma fyrir þá. Þeir gátu spilað afslappað það sem eftir var leiks - öll pressan fór af þeim við markið og þetta var bara auðveld æfing hjá þeim eftir það. Við höfðum fulla trú á því að við gætum lagt þá að velli hér heima en þá hefði ýmislegt þurft að ganga upp og heppnin hefði þurft að vera okkur hliðholl. Við hefðum helst þurft að skora mark snemma og ná að setja smápressu á þá en það gekk ekki eftir. Okkur hefur ekki gengið sem skyldi undanfarin ár í Evrópukeppninni og því var kærkomið að komast í aðra umferð núna og ná að standa uppi í hárinu á Hammarby sem er klassa betra en við,“ sagði Gunnlaugur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×