Innlent

Slæm kennsla í upplýsingatækni

Helmingur stúdenta telur sig fá slæma kennslu í upplýsingatækni í framhaldsskóla, að því er fram kemur í nýrri rannsókn Viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands. Misjöfn geta nemenda er sögð valda deildinni vandkvæðum. Ársæll Valfells, lektor sem umsjón hafði með rannsókninni segir einungis um þriðjung stúdenta telja sig hafa fengið góða upplýsingatæknikennslu í framhaldsskóla og 16 prósent telji kennsluna hvorki hafa verið góða né slæma. Á ráðstefnu sem haldin verður í dag og þar sem niðurstöður rannsóknarinnar kynntar, er þeirri hugmynd velt upp hvort ekki þurfi að gera kröfu um samræmda kennslu í upplýsingatækni í framhaldsskólum. Dæmi munu vera um að nemendur hafi ekki til að bera lágmarksþekkingu á einföldustu aðgerðum í ritvinnslu og töflureiknum þegar þeir hefja nám við háskólann. Ársæll segir afleiðingar þessa vera tvíþættar. Annars vegar sitji nemendur ekki við sama borð við upphaf náms, auk þess sem dýrmætur tími fari í að bregðast við vandanum. Ársæll segir að rannsóknin hafi náð til nemenda viðskipta- og hagfræðideildar og hann viti ekki til að svipuð könnun hafi verið gerð í öðrum deildum eða skólum. Hann segist þó hafa heyrt af því að misjöfn tölvukunnátta nemenda hafi valdið vandkvæðum í öðrum deildum skólans, en það hafi þó ekki verið kannað sérstaklega. "En það sem við sjáum, er að kennsla okkar í upplýsingatækni er mjög vinsæl hjá nemum úr öðrum deildum þar sem minni áhersla er á slíka kennslu," segir Ársæll. Aðspurður um hvað orðið hafi til að ráðist var í rannsóknina segir hann mikilvægi upplýsingatækni í námsefni deildarinnar hafa ráðið mestu. "Áherslan hefur flust frá því að læra á tiltekin forrit yfir í að læra að hagnýta sér notkun þeirra. Þar með er kennsla í upplýsingatækni komin á annað stig og verður að gera ráð fyrir því að nemendur ráði við notkun helstu forrita og eigi auðvelt með að tileinka sér nýja tækni," segir hann og bætir við að niðurstöður rannsóknarinnar hafi þegar orðið til að breyta skipulagi upplýsingatæknináms við deildina. Málþing Viðskipta- og hagfræðideildar er haldið í Lögbergi milli klukkan tvö og fjögur í dag og er öllum opið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×