FH-ingar björguðu stiginu 22. ágúst 2004 00:01
FH og ÍA skildu jöfn, 2-2, í Landsbankadeild karla í knattspyrnu á Kaplakrikavelli í gær. Leikurinn var í það heila fínasta skemmtun og sáust ýmiss konar tilþrif á báða bóga. Heimamenn voru betri framan af og áttu til að mynda skot í slá en þó var nokkuð greinilegt að einhver skjálfti var í þeim. Hvort einhver titlapressa er farin að gera vart við sig skal ósagt látið en liðið var ekki alveg að finna taktinn. Skagamenn voru frekar til baka og beittu stórhættulegum skyndisóknum og þeir skoruðu bæði mörk sín eftir slíkar sóknir. Eftir fyrra mark Skagamanna voru FH-ingar heillum horfnir lengi vel en þeir gáfust þó aldrei upp og jöfnuðu metin og stuttu eftir það var Stefáni Þór Þórðarsyni vikið af velli með tvö gul spjöld, tæpum stundarfjórðungi fyrir leikslok. FH-ingar voru skeinuhættir á lokakaflanum en tókst þó ekki að ná afgerandi tökum né sérstakri pressu. Jafntefli því staðreynd og þau úrslit líklega sanngjörn. Skelfileg dómgæsla Eini skugginn á þessum leik var hörmuleg frammistaða dómarans, Jóhannesar Valgeirssonar, sem tókst næstum því að eyðileggja leikinn með glórulausri dómgæslu og langt síðan annað eins hefur sést. Hann var þó sem betur fer alveg jafn vondur við bæði lið. Stefán Þór Þórðarson var ósáttur eftir leik: „Þetta voru bara töpuð tvö stig. Við mættum afslappaðir til leiks og töldum okkur hafa allt að vinna. Við stöndum síðan ekki undir því að vera tveimur mörkum yfir. Enn og aftur klárum við ekki dæmið þegar allar forsendur eru til þess og það er verulega svekkjandi.“ En hvað fannst Stefáni um gulu spjöldin tvö sem hann fékk með nokkurra sekúndna millibili? „Það er hlutur sem þessi maður verður að eiga við sig sjálfur. Hann segir eftir hálfa mínútu hérna yfir allan völlinn að hann ætli að reka mig út af og þegar menn koma þannig stemmdir til leiks getur þetta ekki farið á nema einn veg. Ég sagði við hann að horfa á hendurnar, og það er ljóst að ef þú ætlar að hóta að reka menn út af verða fáir eftir á vellinum eftir tíu mínútur.“ Ólafur Þórðarson, þjálfari Skagamanna, átti afmæli í gær, orðinn 39 ára gamall, og hann hefði gjarnan viljað fá sigur í afmælisgjöf: „Það er drullusárt að missa niður svona forskot, en svona er þetta bara. Við gerum tvenn mistök sem kosta okkur tvö mörk. Við vorum að spila mjög vel stóran hluta af leiknum, eiginlega alveg þangað til við missum Stebba út af, vorum samt búnir að missa leikinn niður í jafntefli þá. Það gerist fyrst og fremst vegna einstaklingsmistaka, ekki það að menn séu ekki að leggja sig alla fram, heldur var þetta bara ólán. Mér fannst við vera betri aðilinn að þessu sinni, langt fram eftir leik.“ Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH-inga, var nokkuð sáttur eftir leik: „Við vorum auðvitað komnir í mikil vandræði og úr því sem komið var held ég að þessi úrslit hafi verið nokkuð sanngjörn. Samt sem áður hefðum við getað stolið sigrinum undir lokin og þar að auki áttum við skot í slá og stöng, en á móti kemur að auðvitað áttu þeir góð færi líka.“ Heimir var ekki alveg á því að hans menn hefðu verið taugastrekktir: „Þrátt fyrir að við höfum ekki spilað vel í fyrri hálfleik vorum við samt að reyna að fara upp kantana og vorum að fá fyrirgjafir, það vantaði bara græðgi inni í teignum. Við lékum síðan mun betur í seinni hálfleik. Við þurfum þó að laga ýmislegt fyrir næsta deildarleik sem er í Grindavík, ef við ætlum að ná sigri þar, það er alveg ljóst.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Mun aldrei jafna sig á tapinu gegn Íslandi Fótbolti Hraunaði yfir slúðurblað vegna myndar af sér með ekkju Jota Fótbolti Sigurbjörn Árni um Steraleikana: Gæti orðið framtíðin með nægu fjármagni Sport Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Handbolti Um hnífsárásina sem breytti lífi hans: „Hluti af mér er horfinn“ Enski boltinn „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Körfubolti Slot í skýjunum eftir ákvörðun þjálfara Svía Enski boltinn Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Körfubolti „Báðir með svona Manchester United æxli í heilanum“ Enski boltinn Heimsmethafinn Powell í bann 61 árs en ástæðan á huldu Sport Fleiri fréttir KR verður án tveggja sem fengu heilahristing á æfingu Í beinni: FH - Víkingur | Víkingar á mikilli siglingu Í beinni: Stjarnan - Fram | Stjörnukonur geta komist upp í fjórða sæti en Framarar í fallhættu Í beinni: Þór/KA - Þróttur | Bæði lið með vindinn í fangið Delap gæti verið frá fram í desember „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Grealish valinn leikmaður mánaðarins í fyrsta sinn Heimsmethafinn Powell í bann 61 árs en ástæðan á huldu Viðhafnarútsending af Doc Zone: Fimm leikir í enska og lokaumferðin í Lengjunni Segist græða jafn mikið á einum Steraleikum og þrettán heimsmeistaramótum Skór United týndust og kátur búðareigandi í Björgvin græddi vel Sigurbjörn Árni um Steraleikana: Gæti orðið framtíðin með nægu fjármagni Aðeins þrjú lið fengið færri stig í seinni umferðinni en meistararnir „Báðir með svona Manchester United æxli í heilanum“ Slot í skýjunum eftir ákvörðun þjálfara Svía Staðan grafalvarleg og HSÍ leitar nýrra leiða Sjáðu mörkin: ÍA rúllaði yfir Íslandsmeistarana „Setti oft fótboltann fram yfir mína andlegu heilsu“ Brosandi Emelía sneri aftur eftir 406 daga bið Mun aldrei jafna sig á tapinu gegn Íslandi Hraunaði yfir slúðurblað vegna myndar af sér með ekkju Jota Er hluti af leikmannahópnum þrátt fyrir að vera í fangelsi Dagskráin í dag: Besta deild kvenna, Íslendingaslagur, enski og margt fleira Um hnífsárásina sem breytti lífi hans: „Hluti af mér er horfinn“ Engin stig dregin af Chelsea Dagný ólétt að sínu þriðja barni Tyrkneska félagið staðfestir komu Onana Uppgjör: Valur - FH 27-32 | Jón Þórarinn skellti í lás þegar FH sótti tvö stig á Hlíðarenda ÍR komið á blað þökk sé ótrúlegri frammistöðu Baldurs Fritz Sjá meira