Mæta Rússum í dag 21. ágúst 2004 00:01
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir liði Rússlands í dag klukkan tvö í leik í undankeppni Evrópumótsins sem sker úr um hvort liðið hreppir annað sætið. Íslenska liðið myndi þar með ná þeirri stöðu sem stefnt var að í byrjun. Helena Ólafsdóttir, landliðsþjálfari, horfir björt fram á leikinn. Fullar af sjálfstrausti „Það er góð stemning í hópnum og fólk að undirbúa sig á fullu fyrir átökin. Við munum fara varlega í þennan leik enda er rússneska liðið firnasterkt. Þær tóku þátt í lokakeppni heimsmeistaramótsins og eru stóra liðið í þessari viðureign, ef þannig mætti að orði komast. En við erum fullar af sjálfstrausti á okkar eigin heimavelli og málið er að vera innstilltar á þetta verkefni og ná hagstæðum úrslitum“ segir Helena. Leikurinn hefur mikla þýðingu því að með sigri munu stelpurnar tryggja sér annað sætið í riðlinum og góða stöðu fyrir umspil í undankeppni Evrópumótsins. „Þessi leikur snýst um að ná upphaflegu markmiði landsliðsins, sem var annað sætið í riðlinum. Við höfum fullan hug á að ná því. Svo eru náttúrulega búið að vera vangaveltur um hverjar við fáum í umspili. En þetta eru allt frekar jöfn lið sem við munum kljást við og ég vil fyrst og fremst einbeita mér að sunnudeginum og eftir það getum við velt því fyrir okkur hvaða lið við fáum. Við höfum ekki efni á að fara fram úr okkur“. Liðið þjappaði sér saman Ásthildur Helgadóttir hefur verið meidd og verður ekki með í dag. Helena segir liðið hafi saknað hennar en hafi eflst við mótlætið og þjappað sér enn meira saman. „Liðið hefur gert eins vel og hægt er að gera í þessari stöðu. Ásthildur er lykilleikmaður í þessu liði og fyrir vikið hefur mannskapurinn verið staðráðinn í að halda áfram. Mér hefur fundist leikmenn snúa bökum saman og reyna að vinna þetta sem einn maður. Það er samt sem áður gott að hún verði með okkur utan vallar og það veitir stelpunum styrk“. Upplagt fyrir fólk að mæta Mikið hefur verið rætt um leik karlalandsliðsins við Ítalíu og er fólk í skýjunum eftir sigurinn. Stelpurnar eru ekkert hræddar við að spila í skugga þess leiks, og vonast bara til að fólki sé ekki fullseðjað, heldur mæti einnig og styðji við sitt lið. „Þetta er náttúrulega frábært. Stemmningin var gríðarleg á leiknum á miðvikudaginn og strákarnir stóðu sig með prýði. Það eru upplagt fyrir fólk að mæta og skoða þetta frábæra íslenska lið, sem er ungt að aldri og á glæsta framtíð fyrir sér“ segir Helena Ólafsdóttir, landsliðsþjálfari kvenna.
Íslenski boltinn Mest lesið Kristófer opnar sig um ágreininginn: „Vonbrigði og vanvirðing“ Körfubolti Getur varla gengið lengur Sport Mynd af yngstu dóttur Kobe Bryant vekur lukku Körfubolti Shaq lofar að mæta í kjól ef Gobert verður valinn Körfubolti Segir Messi ákaflega ósáttan með leikbannið Fótbolti Snúa aftur eftir 233 daga framkvæmdir: „Þetta er gamechanger“ Íslenski boltinn Ísland eitt af regnbogaliðunum á Evrópumótinu Fótbolti Spilaði með KV í gær en má spila með KR í dag Íslenski boltinn Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Enski boltinn Barcelona biður UEFA um leyfi Fótbolti Fleiri fréttir C-deildar lið Wycombe stóð í Tottenham Wrexham reynir við Eriksen Spilaði með KV í gær en má spila með KR í dag Reisa varanlegan minnisvarða um Jota úr endurunnu efni Jón Daði meiddur og endurkoman bíður Snúa aftur eftir 233 daga framkvæmdir: „Þetta er gamechanger“ Ísland eitt af regnbogaliðunum á Evrópumótinu Kristófer opnar sig um ágreininginn: „Vonbrigði og vanvirðing“ Segir Messi ákaflega ósáttan með leikbannið Getur varla gengið lengur Dagskráin: Fyrsti leikurinn á nýja KR-vellinum, ensk félög í beinni og formúla Shaq lofar að mæta í kjól ef Gobert verður valinn Mynd af yngstu dóttur Kobe Bryant vekur lukku Mættur aftur tuttugu árum seinna Shearer öskureiður: „Þetta er bara fáránlegt“ Aukaspyrnumark Oumars tryggði Njarðvík stig í toppslagnum „Það er ástæða fyrir því að ég vildi snúa aftur “ „Ótrúlegt að við skyldum ekki klára leikinn fyrr“ Barcelona biður UEFA um leyfi Uppgjör: FH - Fram 3-1 | FH-konur upp i annað sætið Keflvíkingar klúðruðu víti á nítugustu mínútu Dan Burn hjá Newcastle: Verðum svekktir ef Alexander Isak fer Ísak aftur með frábæra innkomu Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Messi dæmdur eftir allt saman í bann fyrir skrópið Gyökeres í flugvél á leið til London Leik lokið: Víkingur - Stjarnan 2-1 | Víkingar galopna fallbaráttuna í fyrsta leik undir nýrri stjórn Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Anton Sveinn og Laufey Rún stálu senunni í Nauthólsvík „Hef mikla trú að það muni ganga upp núna“ Sjá meira
Leik lokið: Víkingur - Stjarnan 2-1 | Víkingar galopna fallbaráttuna í fyrsta leik undir nýrri stjórn