Þórarinn maður 13. umferðar 12. ágúst 2004 00:01
Þórarinn Kristjánsson, leikmaður Keflvíkinga, hefur verið valinn af DV-Sport, maður 13. umferðar í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Þórarinn, sem leikið hefur með Keflvíkingum alla sína hunds- og kattartíð, fór hamförum í 4-2 sigurleiknum gegn Fylki í Keflavík, en þá skoraði piltur tvö mörk og lagði þar að auki upp eitt. Alltaf þegar hann fékk knöttinn skapaðist mikil hætta og varnarmenn Fylkis réðu ekkert við hann og Þórarinn var í raun óheppinn að bæta ekki fleiri mörkum við. DV-Sport sló á þráðinn til Þórarins og byrjaði á því að spyrja hann hvort síðasti leikur hafi ekki verið einn sá besti á ferli hans: "Jú, þetta var einn af mínum betri leikjum, ef ekki sá besti. Þetta gekk mjög vel hjá mér og raunar liðinu öllu og það var gaman af þessu. Það var ekki leiðinlegt að sigra Fylkismenn tvisvar með aðeins þriggja daga millibili," segir Þórarinn en lið hans sló út Fylki í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar með 0-1 sigri í Árbæ og svo kom sigurleikurinn í Keflavík. Keflvíkingar hófu mótið af miklum krafti og þóttu leika skínandi knattspyrnu. Fljótlega fór þó að halla undan fæti og í stað skemmtilegrar sóknarknattspyrnu fóru kýlingar og kraðak að líta dagsins ljós. Undanfarnar umferðir hafa hins vegar Keflvíkingar aftur verið að sýna sitt rétta andlit og er það ekki síst Þórarni að þakka. En hvernig útskýrir hann þessar sveiflur hjá liðinu? "Þó að liðið sé frekar ungt þá erum við flestir búnir að spila saman lengi og því með talsverða reynslu. Því á ég frekar erfitt með að útskýra þessar sveiflur hjá okkur í sumar, veit hreinlega ekki hvað gerðist en sem betur fer erum við nú á uppleið og ég trúi ekki öðru en að við höldum áfram að spila okkar bolta sem er sóknarknattspyrna - það fer okkur best," segir Þórarinn ákveðinn. Í upphafi móts var Þórarinn að koma til baka úr meiðslum og það tók hann nokkurn tíma að komast í sitt besta form. Hann sat talsvert á bekknum en sú tíð er að baki og nú er ekkert nema blússandi sigling framundan. Er Þórarinn að spila sinn besta bolta á ferlinum? "Ég er ekki frá því, maður er í það minnsta að koma mjög sterkur inn núna, er meiðslalaus og vonandi heldur það áfram. Ef hlutirnir ganga áfram svona vel verður þetta án efa besta keppnistímabilið hjá mér hingað til." Keflvíkingar unnu síðast stóran titil árið 1997 en þá hampaði liðið bikarnum eftir æsilega baráttu við ÍBV. Þórarinn man þetta vel og vildi gjarnan upplifa slíka tilfinngu aftur: "Ég hefði ekkert á móti því og það er alveg komin tími á að vinna titlil aftur," segir Þórarinn og það vottar fyrir bikarlöngun í röddinni: "Það er ágætur möguleiki núna, við erum komnir í undanúrslit og að sjálfsögðu stefnum við á að fara alla leið." Keflvíkingar hafa hampað Íslandsmeistaratitlinum fjórum sinnum, 1964, 1969, 1971 og 1973. Hvað skortir Keflavíkurliðinu nú til þess að komast alla leið á toppinn aftur? "Það er í raun og veru ekki margt," segir Þórarinn og bætir við: "Við erum með dúndurlið og það er enginn, og hefur ekki verið, neinn hörgull á góðum knattspyrnumönnum hér í Keflavík. Ég held að það sem okkur skorti fyrst og fremst sé heppni - allt annað er til staðar." Aðspurður segir Þórarinn að stefnan sé auðvitað sett á að komast lengra - í atvinnumennsku og A-landsliðið. "Það vilja auðvitað allir fótboltamenn komast út og geta haft þetta að lifibrauði og ég er þar engin undantekning og hef stefnt að því lengi. Síðan er ákveðinn draumur að fá að spreyta sig í A-landsliðinu en ég lék með öllum yngri landsliðunum og það vantar bara A-liðið," sagði Þórarinn Kristjánsson, maður 13. umferðar Landsbankadeildar karla í knattspyrnu.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Donald Trump sást svindla á golfvellinum Golf Fékk meira að segja kveðju frá sínum helsta óvini Sport Musk og Schwarzenegger sendu Hafþóri Júlíusi hamingjuóskir Sport „Ef ég geri það ekki þá mun ég kannski sjá eftir því alla ævi“ Sport Viðurkennir að prumpið sem heyrðist um allan heim sé hans Golf Brella Englendinga sem gæti hafa tryggt þeim EM-gullið Fótbolti Kóngafólkið eys lofi yfir enska liðið Fótbolti Sú besta í áfalli og baðst afsökunar Fótbolti Spilaði og varð Evrópumeistari fótbrotin Fótbolti Siggi Raggi for holu í höggi á vellinum þar sem Íslandsmótið fer fram Golf Fleiri fréttir Með átta mörk og sex stoðsendingar í sama leiknum Segja Jóhannes kosta tæpar tíu milljónir króna Flýr Ten Hag og semur við Sunderland Grét þegar hann var kynntur hjá nýju félagi Sjáðu Pedersen jafna metið og Kennie kremja hjörtu Víkinga NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals „Ef ég geri það ekki þá mun ég kannski sjá eftir því alla ævi“ Eir Norðurlandameistari en fékk of mikla hjálp til að fá metið Sú besta í áfalli og baðst afsökunar Siggi Raggi for holu í höggi á vellinum þar sem Íslandsmótið fer fram Brella Englendinga sem gæti hafa tryggt þeim EM-gullið Donald Trump sást svindla á golfvellinum Fékk meira að segja kveðju frá sínum helsta óvini Spilaði og varð Evrópumeistari fótbrotin Kóngafólkið eys lofi yfir enska liðið Viðurkennir að prumpið sem heyrðist um allan heim sé hans Dagskráin í dag: Mikilvægur leikur í Garðabæ Rashford mátaði treyjuna í leik sem átti ekki að fara fram Musk og Schwarzenegger sendu Hafþóri Júlíusi hamingjuóskir „Þeir refsuðu okkur í dag“ Evrópumót kvenna aldrei betur sótt en nú „Þurftum að fá aðeins ferskt blóð inn í þetta“ „Það er að kosta okkur mikið að nýta ekki færin“ Rúnar Kristinsson: Glaðir með stigið Skrifaði undir nýjan samning eftir að hafa verið svo gott sem farinn „Ég klikka ekki á tveimur vítaspyrnum í röð“ Rigningin setti strik í reikninginn er Piastri sigraði í Belgíu Uppgjörið: Fram - Víkingur 2-2 | Kennie Chopart stal stigi fyrir Fram Uppgjörið: Valur - FH 3-1 | Pedersen jafnaði markametið og Valur á toppinn LeBron hitti umboðsmann Jokic í Frakklandi Sjá meira