Innlent

Rauði kross Íslands í Darfur

Þrír reyndir sendifulltrúar Rauða kross Íslands eru að störfum á neyðarsvæðunum í Darfur í Súdan. Rauði kross Íslands hefur auk þess veitt nær tíu milljónir króna til hjálparstarfsins þar. Ennfremur starfar Alþjóða Rauði krossinn að því að vernda óbreytta borgara gegn brotum á alþjóðlegum mannúðarlögum, sameina fólk sem orðið hefur viðskila og tryggja réttindi fanga. Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, segir að hvergi í veröldinni ríki annað eins neyðarástand og í Darfur. Að minnsta kosti milljón manna er á vergangi í Darfur og 150 þúsund hafast við í flóttamannabúðum í nágrannaríkinu Chad.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×