Innlent

Tveir handteknir á Selfossi

Lögreglan á Selfossi handtók tvo menn í nótt eftir að þeir höfðu brotist inn á tannlækastofu í bænum og voru þar á útleið með tölvu og talsvert af lyfjum. Fyrr um daginn höfðu mennirnir verið reknir úr Byrginu á Efri Brú vegna umgengniserfiðleika. Þeir gistu fangageymslur á Selfossi í nótt enda búnir að skjóta einhverjum lyfjum á sig þegar þeir voru handteknir, og verða þeir yfirheyrðir síðar í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×