Fáir á innsetningu forseta 28. júlí 2004 00:01
Helmingur ríkisstjórnarinnar verður fjarverandi þegar Ólafur Ragnar Grímsson verður settur inn í embætti forseta Íslands á sunnudag. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson sver embættiseiða til næstu fjögurra ára á sunnudag. Athöfnin hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni og síðan ganga forsetahjónin til Alþingishússins ásamt gestum. Þar fer sjálf athöfnin fram og síðan ganga forsetahjónin fram á svalir Alþingis. Athygli vekur að að minnsta kosti helmingur íslensku ríkisstjórnarinnar verður fjarverandi við innsetningarathöfnina. Þar ber fyrstan að telja Davíð Oddsson, forsætisráðherra, sem er að jafna sig eftir aðgerð. Geir H. Haarde, fjármálaráðherra er erlendis, og einnig verða fjarverandi Árni Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, viðskipta- og iðnaðarráðherra, Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra og Árni Magnússon, félagsmálaráðherra. Fjórir ráðherrar verða viðstaddir athöfnina svo vitað sé; Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra og starfandi forsætisráðherra, Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Ekki fengust upplýsingar frá dómsmálaráðuneyti og menntamálaráðuneyti um hvort Björn Bjarnason og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir myndu mæta við innsetningarathöfn forseta Íslands á sunnudag.
Fréttir Innlent Mest lesið Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Beint streymi frá Gleðigöngunni Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Erlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Erlent Fleiri fréttir Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Sjá meira