Innlent

Aukin hætta á innbrotum um helgina

Lögreglan í Reykjavík sendi út tilkynningu í dag þar sem hún biður fólk að ganga vel frá eigum sínum fyrir verslunarmannahelgina. Hún bendir á að hægt sé að sækja upplýsingar um innbrotavarnir á vefsíðu embættisins www.lr.is. Lögreglan mun halda úti auknu eftirliti í íbúðahverfum um helgina líkt og undanfarin ár en hættan á innbrotum eykst þegar mörg hús og íbúðir eru yfirgefnar í einu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×