Enn leitað að Sri 28. júlí 2004 00:01
Kafarar lögreglunnar og björgunarsveitarmenn munu í dag halda áfram leit að líkinu af Sri Ramawati, konunni sem saknað hefur verið í tæpan mánuð, eftir að fyrrverandi sambýlismaður hennar játaði í gær að hafa kastað líkinu í sjóinn við Prestshúsatanga á Kjalarnesi. Maðurinn, sem er í gæsluvarðhaldi á Litlahrauni féllst síðdegis í gær að vísa leitarmönnum á staðinn og var honum þá þegar ekið á vettvang, þangað sem komið var um klukkan hálf sjö í gærkvöldi. Strax að því loknu var honum ekið aftur í fangelsið, en lögreglan tilkynnti aðstandendum konunnar þetta í gær. Þar með voru loks öll tvímæli tekin af um það að konan væri látin. Hann hefur hinsvegar ekki enn játað að hafa ráðið henni bana, en hann verður yfirheyrður nánar í dag. Um það bil 120 björgunarsveitarmenn og kafarar úr sérsveit Ríkislögreglustjóra leituðu að líki konunnar í allt gærkvöld án árangurs og er ráðgert að halda leitinni áfram í síðdegis í dag. Grunnsævi er við klettana á Kjalarnesi, en þar er nokkuð straumhart. Björgunarmenn ætla meðal annars að ganga strendur eyjanna á sundunum og fjörur á landi allt að Hvalfjarðagöngum í norður og að Garðabæ í suður. Leitað verður líka á björgunarskipi og á slöngubátum.
Fréttir Innlent Mest lesið Kalli Snæ biðst afsökunar Innlent Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Innlent Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Innlent „Er allt komið í hund og kött?“ Innlent Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Innlent Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Innlent Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Innlent Tilraunaverkefni hjá borginni á að koma ruslinu á réttan stað Innlent Lýsa eftir Hlyni Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Innlent Fleiri fréttir Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins „Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Leitin að Jóni Þresti og hópmálsókn ferðaþjónustunnar Tomasz tekur við formennsku í innflytjendaráði Bein útsending: Réttlæti og ábyrgð – Vernd barna í Úkraínu „Er allt komið í hund og kött?“ Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Um níu þúsund umsóknir í Háskóla Íslands Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Fangar fluttir á spítala nokkrum sinnum á ári vegna ofneyslu vímuefna Tilraunaverkefni hjá borginni á að koma ruslinu á réttan stað Kalli Snæ biðst afsökunar Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Tilfinning hægri manna um að fréttir RÚV séu óháðar fer dvínandi Gengur hringinn til styrktar vannærðum börnum Þingmenn hneykslast á mótmælum við hátíðarathöfnina Ein bílferð jafngildi tuttugu þúsund mótorhjólaferðum Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Féll í hálku í sundi og fær bætur Hátt spennustig, ruslið sem ekki er hægt að endurvinna og kvennavaka Ótrúlegar myndir af krefjandi lendingu án nefhjóls Írskir lögreglumenn til Íslands vegna máls Jóns Þrastar Bréfið rímar ekki við fullyrðingar Kalla Snæ Hyggjast ekki greina frá nöfnum hinna látnu Sjá meira