Innlent

Alka Selzer á íslenskan markað

Verkjalyfið fræga Alka Selzer, sem ferðamenn hafa borið með sér að utan í áraugi, fæst nú í fyrsta sinn í apótekum hér á landi en yfir 60 ár eru síðan lyfið kom fyrst á markað. Samkvæmt upplýsingum frá lyfjastofnun hafði enginn sóst eftir því að markaðssetja lyfið hér á landi fyrr en nú, og fékk PharmaNor hf, markaðsleyfi fyrir lyfinu fyrr á árinu. Lyfið verður selt í lausasölu og er ekki lyfseðilsskylt. Má segja að tímasetningin gæti ekki verið betri svona rétt fyrir verslunarmannahelgi þar sem lyfið hefur orð á sér fyrir að verka vel á timburmenn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×