Innlent

Slysahætta í Hallormsstað

Það er tímaspursmál þangað til alvarlegt slys verður á veginum í gegnum Hallormsstaðarskóg, en hraðakstur er viðvarandi vandamál þar. Samkvæmt þremur hraðakönnunum sem gerðar voru í júlí, aka aðeins 45 prósent ökumanna á löglegum hámrkshraða. Reynir Arnórssonar, umferðarfulltrúi á Austurlandi, segir umferð hafa þyngst mikið á þessum slóðum eftir að virkjunarframkvæmdir við Kárahnjúka hófust. Umferð vörubíla er talsverð í gegnum skóginn sem Reynir telur slæmt, því mikið gangandi vegfarendur séu margir. Hann mælist til þess að hraðahindranir verði settar upp til að sporna við alvarlegum slysum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×