Innlent

Meiri fuglaveiðar í Reykjavík

Fjöldi fólks hefur tilkynnt veiðar á öndum, gæsaungum og jafnvel spörfuglum í Hljómskálagarði, Laugardal og Fossvogsdal í kjölfar frétta af andaveiðum í borginni. Ljóst er að fuglaveiðar í borginni eru mun umfangsmeiri en talið var. Katrín Jakobsdóttir, formaður Umhverfis og heilbrigðisnefndar Reykjavíkurborgar, segist líta málið alvarlegum augum og aukin vöktun hafi verið skipulögð með þeim svæðum sem hægt er, auk þess sem málið er unnið í samstarfi við lögregluna. Umhverfis- og heilbrigðisnefnd er sem stendur í sumarfríi en málið verður rætt á fundi hennar næst þegar hún kemur saman. Katrín segir að samkvæmt ábendingum virðist um einn hóp fólks vera að ræða, sem hún telur að hafi einfaldlega ekki vitað betur, því veiðum virðist hafa fækkað eftir að málið komst í fjölmiðla. Katrín hvetur alla sem vita af fuglaveiðum að hafa samband við lögregluna, þar sem klárlega er um lögbrot er að ræða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×