Vörugjald áfengis hækkar um 200% 27. júlí 2004 00:01
Fjármálaráðherra hefur hækkað vörugjöld á áfengi um tæp 200% samkvæmt nýrri gjaldskrá. Fyrir mánuði lýsti samgönguráðherra því yfir að lækka yrði skatta á áfengi. Eftir hækkunina eru gjöld á áfengi 983 krónur á tonn en var 346 krónur. Á næstu mánuðum kemur í ljós hvort heildsalar slái af álagningu sinni eða hvort það kemur í hlut neytenda að greiða mismuninn. Töluvert hefur verið rætt um hátt verð á áfengi hér á landi, ekki síst í tengslum við ferðaþjónustu. Samtök verslunarinnar hafa bent á að í stjórnarsáttmálanum komi fram að bæta skuli umhverfi hennar en Ísland er nú í fyrsta sæti á breskum lista yfir dýrustu ferðamannalönd heims. Samtökin hafa einnig bent á að skattur stjórnvalda á áfengi sé út úr öllu korti miðað við það sem almennt þekkist. Undir það sjónarmið tekur Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra. Í fréttum Ríkisútvarpsins þann 23 . júní síðastliðinn sagði hann að lækka yrði skatta á áfengi ef þörf sé á því fyrir íslenska ferðaþjónustu og að óhjákvæmilegt væri að taka málið upp. Nokkrum dögum síðar mátti þó heyra Geir H. Haarde fjármálaráðherra, í sama fjölmiðli, slá þessar hugmyndir ferðamálaráðherra af borðinu. Hann sagði þá stefnu hafa verið uppi hjá Íslendingum að leggja há gjöld á áfengi sem lið í forvarnaraðgerðum. Hann benti jafnframt á að áfengisskattar hefðu ekki hækkað hér á landi í nokkur ár og því lækkað að raungildi. Með tæplega 200 prósenta hækkun á vörugjöldum nú má þó búast við að áfengið haldi áfram að leggja ríkissjóði til dágóðar tekjur.
Fréttir Innlent Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Fleiri fréttir Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Sjá meira