Innlent

Viðamikil leit að Sri hefst í dag

Björgunarsveitir hefja skipulagða leit að Sri Rahmawati klukkan 17 í dag. Leitarmenn frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, allt frá Suðurnesjum upp í Borgarfjörð og að Selfossi, að meðtöldum björgunarsveitunum á höfuðborgarsvæðinu, munu taka þátt í leitinni að því er segir í tilkynningu. 25 björgunarsveitarbílar og 125 björgunarsveitarmenn munu taka þátt í hinni viðamiklu leiti sem einskorðast við valin svæði í nágrenni Reykjavíkur. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×