Tvenn jarðgöng og nýir vegir 26. júlí 2004 00:01
Þeim umfangsmiklu vega- og gatnaframkvæmdum sem staðið hafa yfir í sumar víðs vegar á landinu miðar eftir áætlun, samkvæmt upplýsingum frá Rögnvaldi Gunnarssyni hjá Vegagerðinni. Á árinu er veitt 7,2 milljörðum króna til nýrra verkefna. Hér á eftir verða nefndar stærstu nýframkvæmdirnar sem unnið er að nú. Tvöföldun Reykjanesbrautarinnar á 12 kílómetra kafla við Kúagerði, sem nær suður fyrir Vatnsleysustrandarveg, er langt komin. Er gert ráð fyrir að vegurinn verði opnaður um næstu mánaðamót. Þá verður Stekkjarbakki í Breiðholti opnaður formlega á morgun, miðvikudag. Verið er að vinna af fullum krafti við færslu Hringbrautarinnar í Reykjavík. Þá voru opnuð tilboð um miðjan júlí í breikkun á hringveginum frá Víkurvegi í Grafarholti og upp í Mosfellsbæ. Það verkefni á að vinna á þessu ári og því næsta. Í Stafholtstungum í Borgarfirði er í útboði vegarkafli á þjóðvegi 1, sem liggur frá Gljúfurá að Grafarkoti. Þessi kafli, sem er rúmlega 6 kílómetra langur og tilheyrir hringveginum, er mjög hlykkjóttur með mörgum kröppum beygjum. Vegurinn verður endurbyggður á næstu tveimur árum og taka á af honum bugðurnar. Þá er verið að vinna við að brúa Kolgrafarfjörð á Snæfellsnesi. Þar verður lagður nýr vegur sem styttir leiðina milli Grundarfjarðar og Stykkishólms. Með tilkomu nýja vegarins losna ferðalangar við að aka fyrir Kolgrafarfjörðinn, sem er veðrasamur kafli og erfiður. Vestfirðir og Norðurland Á Vestfjörðum er unnið að tveimur stórum verkefnum á árinu. Á Barðaströnd er verið að leggja veg um Klettsháls sem er áfangi í að auðvelda vetrarleiðina á sunnanverðum Vestfjörðum. Í Ísafjarðardjúpi er verið að vinna við um 30 kílómetra langan vegarkafla í Skötufirði og Hestfirði. Um er að ræða endurbyggingu á gamla veginum. Þá er fyrirhugað að bjóða út í haust kafla á hringveginum í Norðurárdal í Skagafirði. Um er að ræða um 7 kílómetra vegarkafla áður en farið er upp á Öxnadalsheiði, yfir Norðurá í Skagafirði, sem verður brúuð neðar en nú er. Í seinni áfanga þessara framkvæmda verða meðal annars lagðar af tvær einbreiðar brýr í Skagafirði. Á Tjörnesi er nú verið að ljúka framkvæmdum við vegarkafla sem nær austur í Axarfjörð. Á hringveginum á Möðrudalsöræfum er verið að leggja slitlag á malarkafla frá Biskupshálsi að nýja veginum, sem lagður var fram hjá Möðrudal. Enn er þá eftir malarkafli, þar sem komið er niður í Jökuldal, svo og víðar á Austurlandi. Tvenn jarðgöng Unnið er af fullum krafti í jarðgöngunum milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar, sem verða 5,7 kílómetra löng. Því verki á að ljúka næsta haust. Er reiknað með að gatið verði komið í gegn í lok september. Þá er eftir frágangur á göngunum. Einnig er verið að vinna við göng undir Almannaskarð sem verða 1150 metra löng. Gerð þeirra á að ljúka í júní á næsta ári. Þar eru einnig framkvæmdir við 4 kílómetra veg við göngin. Rögnvaldur sagði að stærsta verkefnið af þeim sem upp hefðu verið talin hér að framan væru Fáskrúðsfjarðargöngin sem áætlað væri að kostuðu um 3,8 - 3,9 milljarða. Endurbæturnar á hringveginum í Borgarfirði og Skagafirði væru líklega til mestra umferðarbóta fyrir hinn almenna landsmann.
Fréttir Innlent Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira