Frelsum Bobby 26. júlí 2004 00:01
Frelsum Bobby samtökin verða stofnuð hér á landi til að freista þess að frelsa Bobby Fischer úr varðhaldi í Japan og búa honum áhyggjulaust ævikvöld á Íslandi. Á morgun verður sett upp vefsíða undir nafninu „Free Bobby“ og er markmiðið að ná þannig til heimsbyggðarinnar allrar. Bobby Fischer, sem talinn er einn mesti skáksnillingur sögunnar, hefur verið í varðhaldi í Japan að undanförnu. Bandarísk stjórnvöld hafa krafist framsals hans og á hann yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi fyrir að brjóta viðskiptabann við Júgóslavíu með því að tefla þar við Boris Spasskí í tilefni af 20 ára afmæli einvígis aldarinnar árið 1992. Skákáhugamenn hér á landi eru slegnir yfir þessum fréttum og vilja að Íslendingar rétti Fischer hjálparhönd þar sem hann hafi unnið ómetanlegt verk fyrir Ísland og skáklistina. Þá verði ekki hjá því litið að ranglæti felist í því að hneppa mann í tíu ára fangelsi fyrir að hafa teflt skák í landi sem er ekki lengur til. Hrafn Jökulsson, formaður Hróksins, segir að í fyrsta umgangi verði reynt að vekja sem mesta athygli á högum snillingsins. Í þeim efnum sé verið að opna vefsíðu þar sem herferðin „Free Bobby“ verður rekin. Hrafn segir að á sömu forsendum og Bandaríkjamenn ráku baráttu fyrir því að frelsa hinn aldurhnigna, íslenska háhyrning, þ.e. Keikó, hér um árið, þá verði barist fyrir því að frelsa hinn roskna, bandaríska skákmeistara. Þetta verður kynnt í hinum alþjóðlega skákheimi og undirskriftum verður safnað á vefsíðunni. Það eru Skákfélagið Hrókurinn og Birtingarholt sem standa fyrir vefsíðunni og verður hún opnuð formlega á morgun. Markmiðið er að Bobby Fischer fái hæli hér á Íslandi. Hrafn segir menn auðvitað vera slegna þegar þeir velti fyrir sér þessum óþarfa harmleik sem nú eigi sér stað.
Fréttir Innlent Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Veður Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Innlent Fleiri fréttir Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Sjá meira