Innlent

Starfsfólk fæst ekki

Mikið álag er á starfsfólki slysa- og bráðadeildar Landspítala háskólasjúkrahúss og fólk getur þurft að bíða klukkustundum saman eftir þjónustu. Starfandi lækningaforstjóri segir ástæðuna ekki vera fjársvelti heldur fáist fólk einfaldlega ekki til starfa.  Ekki var unnt nema í einstökum tilfellum að ráða sumarafleysingafólk á deildina og dæmi eru um að meira en helmingur læknanna séu í fríi á sama tíma. Vilhelmína Haraldsdóttir, starfandi lækningaforstjóri LSH, segir oft erfitt að finna afleysingafólk í störf sérfræðilækna á bráðadeild því þau séu erfið og sérhæfð. Yfirlæknir á bráðamóttöku segir ástandið slíkt að starfsfólk fari örþreytt heim og sé ekki úthvílt þegar það mæti aftur til starfa. Starfandi lækningaforstjóri segir hættuástand ekki hafa skapast, þótt álag sé mikið. Þess sé gætt að mönnun fari ekki niður fyrir öryggismörk og mikið slösuðu fólki sé veitt aðhlynning um leið og það kemur á deildina. Hins vegar komi alltaf töluvert af fólki á slysadeildina sem er tiltölulega lítið þjáð og gæti leitað sér aðstoðar annars staðar og segir Vilhelmína að biðin komi langmest niður á því fólki eins og eðlilegt er.  Ekki er það svo að allir slasi sig á opnunartíma Heilsugæslustöðva og dæmi eru um að biðin eftir þjónustu læknis á slysadeildinni vari í fjórar klukkustundir. Starfandi lækningaforstjóri segist vona að betur gangi að manna deildina fyrir sumarleyfi á næsta ári, án þess þó að hafa svör við því hvernig lokka eigi lækna til starfa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×