Innlent

SS hækkar nautakjötsverð

Sláturfélag Suðurlands hefur nú hækkað verð á nautgripakjöti til bænda um 6%. Eftir þessar verðbreytingar greiðir SS nú hæsta verð á landinu fyrir lang flesta flokka nautgripakjöts að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir jafnframt að SS sé í dag leiðandi á sláturmarkaði fyrir nautgripi með um 30% sláturmarkaðar fyrir ungnaut og 33% sláturmarkaðar fyrir kýr. Búist er við tíðindum af verðbreytingum annarra sláturleyfishafa á næstunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×