Innlent

Kókaín vinsælasta fíkniefnið

Kókaín er orðið lang vinsælasta fíkniefnið í Danmörku og nær nú til allra þjóðfélagshópa. Nákvæmlega sama þróun virðist vera upp á teningnum hér á landi þar sem dagsskammturinn kostar rösklega tíu þúsund krónur. Danska blaðið Politiken greinir frá því að kókaínið sé orðið vinsælla fíkniefni í samkvæmum en e-pillan, eða helsælan, og neysla þess nái nú út fyrir raðir ríka og fræga fólksins og til allra þjóðfélagshópa. Talsmenn dönsku fíkniefnalögreglunnar segja að framboðið aukist stöðugt og verðið fari lækkandi, þrátt fyrir að mun meira kókaín sé nú tekið úr umferð en nokkru sinni fyrr. Lögreglan gerði 104 kílógrömm upptæk í fyrra og talið er að það sé í mesta lagi 10% af heildarinnflutningi á efninu til landsins. Neyslan í Danmörku gæti þannig numið u.þ.b. einu tonni af kókaíni á ári. Dönsk heilbrigðisyfirvöld segja líka að innlögnum á sjúkrahús vegna kókaínneyslu hafi snarfjölgað hin síðari ár, einkum síðastliðin tvö ár. Sverrir Jónsson, læknir á Vogi, tekur í sama streng en 192 kókaínfíklar voru lagðir in á Vog í fyrra. Þegar hann hóf þar störf fyrir sjö árum var þetta nær alveg óþekkt, nema meðal fárra Íslendinga sem voru búsettir erlendis og höfðu ánetjast efninu. Karlmenn eru þarna í margföldum meirihluta en konur sækja þó á að sögn Sverris. Breska blaðið The Guardian greinir frá svipaðri þróun í Bretlandi og segir að framleiðendur í Suður-Ameríku leggi nú mun meiri áherlsu á Evrópumarkað en áður. Það kann að nokkru að skýrast af því að bandarísk stjórnvöld hafa styrkt stjórnvöld í þeim heimshluta til að uppræta kókaínframleiðendur til að hefta innflutning á því til Bandaríkjanna. Í ljósi þessara frétta frá Bretlandi lítur út fyrir að að lítið eða ekkert dragi úr framleiðslunni; henni sé einfaldlega beint inn á annan heimshluta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×