Innlent

Laxveiðimenn fagna rigningunni

Laxveiðimenn á suðvesturhorni landsins binda miklar vonir við vætutíðina sem nú er gengin í garð þar sem margar ár eru orðnar mjög vatnslitlar. Veiði hefur hins vegar verið allgóð þrátt fyrir það og í gær var t.d. búið að veiða 840 laxa í Norðurá. Blanda kemur verulega á óvart með 820 laxa og 550 löxum hefur verið landað úr Laxá í Kjós.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×