Áfengisauglýsingar Moggans kærðar 25. júlí 2004 00:01
Morgunblaðið auglýsir áfengi í tímariti um helgina þrátt fyrir blátt bann við slíkum auglýsingum í lögum. Hildur Hafstein hjá Lýðheilsustofnun segir að auglýsingarnar verði kærðar. Hún segir nauðsynlegt að gera lög um áfengisauglýsingar skýrari en þau séu margoft brotin. Lögregla og Áfengis- og vímuefnaráð, sem nú er hluti af Lýðheilsustofnun, eiga að framfylgja banni við áfengisauglýsingum. Þrátt fyrir það hefur borið á því margsinnis að brotið sé gegn banninu, bæði beint og óbeint, nú síðast af Morgunblaðinu sem birtir fjórar áfengisauglýsingar í tímariti um mat og vín um helgina, fyrir utan hefðbundnar kynningar á víni. Dómsmálaráðherra sagði á Alþingi í vetur að ekki léki neinn vafi á því að lögin væru í fullu gildi og benti á úrskurð Hæstaréttar frá árinu 1998 því til staðfestingar. Þar kemur fram að þau brjóti hvorki í bága við stjórnarskrá Íslands né mannréttindasáttmála Evrópu. Anna Elínborg Gunnarsdóttir, ábyrgðarmaður tímaritsins sem er gefið út af Árvakri og fylgir Morgunblaðinu, sinnti ekki skilaboðum Stöðvar 2 .Hildur Hafstein hjá Lýðheilsustofnun segir að oft hafi verið send erindi til saksóknara vegna óbeinna auglýsinga, þ.e.a.s. vínkynninga. Morgunblaðið hafi hér gengið skrefinu lengra en borið hafi á beinum auglýsingum í fjölmiðlum undanfarið. Hún segir lögin vera til að vernda börn, unglinga og þá sem kannski á einhvern hátt standi höllum fæti, en ekki fullorðið fólk sem kunni og geti farið með vín. Hildur segir forgangsmarkmiðið í heilbrigðisáætlun Lýðheilsustofnunar vera að draga úr áfengisneyslu landsmanna. Því sé nauðsynlegt að skýra lögin betur svo unnt sé að framfylgja þeim á ákveðnari hátt en gert sé. Svo virðist sem menn geri sér það hreinlega að leik að fara í kringum þau að sögn Hildar. Viðurlögin við brot á lögunum eru sektir og segir Hildur það vera hugsanlegt að menn auglýsi, þrátt fyrir að eiga þá sektir yfir höfði sér, vegna þess að sölutekjurnar séu hærri en sektarupphæðirnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira