Vísar á bug ummælum FÍB 25. júlí 2004 00:01
Guðmundur Sigurðsson hjá Samkeppnisstofnun vísar því á bug að rannsókn á tryggingafélögunum hafi verið óeðlileg. Menn geti hins vegar deilt um málalyktir. Hann fagnar því að áfrýjunarnefnd hafi vísað frá máli FÍB sem kærði rannsóknina. Eins og kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær íhugar Félag íslenskra bifreiðaeigenda að höfða dómsmál gegn Tryggingafélögunum. Framkvæmdastjóri félagsins gaf Samkeppnisstofnun falleinkun fyrir frammistöðu sína í málinu; sjö ára rannsókn hefði skilað fimmtán blaðsíðna skýrslu og allar sektir hefðu verið felldar niður vegna dráttar á rannsókninni. Hann sagði þetta engan veginn ásættanlegt fyrir neytendur sem hefðu tapað milljörðum vegna háttsemi félaganna. Guðmundur Sigurðsson, sem hafði yfirumsjón með rannsókn Samkeppnisstofnunar, segist ánægður með að áfrýjunarnefnd hafi vísað frá kæru FÍB á þeim forsendum að félagið væri ekki aðili að málinu. Hann segir að þrátt fyrir að stofnunin hafi fengið ábendingar og athugasemdir frá félaginu varðandi málið gegn Tryggingafélögunum hafi alltaf legið fyrir að þeir væru ekki málsaðilar. Framkvæmdastjóri FÍB sagði furðulegt að sá maður sem var viðskiptaráðherra þegar rannsóknin hófst skyldi síðan hafa siglt málinu í höfn sem oddviti tryggingafélaganna. Guðmundur Sigurðsson segir að aðdróttanir um pólitísk tengsl eigi ekki við rök að styðjast. Samkeppnisstofnun sé sjálfstæð stofnun og óháð ráðherra hverju sinni. Skýrasta dæmið um það sé þegar núverandi viðskiptaráðherra hafi ætlað að sameina Landsbanka og Búnaðarbanka meðan þeir voru enn ríkisbankar. Niðurstaða Samkeppnisráðs um að það væri óheimilt hefði komið ráðherra jafn mikið á óvart og öðrum.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira