Innlent

Björgunarsveit náði í Dana

Flugbjörgunarsveitin á Hellu sótti í nótt danskan ferðamann um fertugt sem hafði læstst í baki, um hálfan annan kílómetra frá Hrafntinnuskeri. Beiðni barst á ellefta tímanum í gærkvöld um að sækja manninn en hann hafði þá hringt í Neyðarlínuna. Flugbjörgunarsveitin á Hellu sendi tvo bíla með átta björgunarsveitarmönnum á vettvang. Björgunarsveitarmenn þurftu að bera þrautum píndan manninn á börum um það bil kílómetra áður en komist var í björgunarsveitarbíla. Manninum fór að líða betur eftir að hafa fengið verkjasprautu en hjúkrunarfræðingar, sem jafnframt eru sérþjálfaðir björgunarsveitarmenn, voru með í för og önnuðust hann. Maðurinn var fluttur á Selfoss, þar sem hann á vinafólk, og hugðist hann leita sér læknis þar í dag. Daninn sagði björgunarmönnum sínum að það hefði komið fyrir hann áður að fá svona svakalegt þursabit. Myndin er úr myndasafni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×