Innlent

Lést í eldsvoða í Reykjavík

Kona á níræðisaldri lést í eldsvoða í fjölbýlishúsi við Sundlaugaveg í Reykjavík í nótt. Það var um sexleytið í nótt sem vegfarandi sá reyk leggja út frá húsinu og hringdi strax í neyðarlínuna. Í húsinu eru fjórar íbúðir og var konan ein á efri hæð þess. Fjölskylda með tvö ung börn býr á neðri hæðinni og voru þau vakin ásamt öðrum íbúum af lögreglu, nokkrum mínútum yfir sex, og húsið rýmt. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom á staðinn tveimur til þremur mínútum seinna og gekk slökkvistarf greiðlega. Konan var látin þegar að var komið en svo virðist sem eldurinn hafi kviknað í svefnherbergi hennar. Skemmdir á íbúðinni eru að mestu bundnar við þetta eina herbergi en nokkuð tjón varð þó einnig af völdum reyks og vatns. Ekki er vitað um eldsupptök enn sem komið er. Myndin er úr myndasafni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×