Yfirbugaður með veiðiriffil 24. júlí 2004 00:01
Engan sakaði þegar sérsveitarmenn og lögregla á Akureyri yfirbuguðu mann í gærkvöld sem braust inn í hús á staðnum vopnaður veiðiriffli. Maðurinn var undir áhrifum fíkniefna. Lögreglan á Akureyri fékk aðstoð sérsveitarmanna á Akureyri við handtökuna og beðið var um aðstoð frá sérsveitinni í Reykjavík en beiðnin var afturkölluð þegar maðurinn hafði verið handtekinn. Ólafur Ásgeirsson, lögreglumaður á Akureyri, segir að tilkynning hefði borist um háttalag mannsins klukkan hálf tíu í gærkvöld. Þá hafi allt verið sett í gang og lögreglan hafi fljótlega komist í samband við manninnn þegar hann hringdi í lögregluna. Í kjölfarið hafi verið hægt að staðsetja hann og lögreglan fór svo í humátt á eftir honum, auk þess að loka götum og kalla út fleiri menn. Maðurinn sem er á þrítugsaldri veifaði kraftmiklum veiðiriffli, sem hann tók ófrjálsri hendi í heimahúsi fyrr um kvöldið, og skaut þremur skotum út í loftið. Lögreglan vissi að hann ætlaði inn í hús við Aðalstræti að gera upp sakir við mann sem honum hafði sinnast við fyrr um daginn. Þess vegna var götunni lokað og fólki beint frá. Eftir að hafa brotist inn í húsið við Aðalstræti, sem var mannlaust, gafst maðurinn upp og var færður í fangaklefa um klukkan ellefu. Ólafur Ásgeirsson segir manninn hafa gefist upp svo gott sem mótþróalaust. Hann hafi hins vegar viljað fá lögreglumanninn, sem hann talaði fyrst við í símann, á staðinn. Orðið var við þeirri beiðni og í kjölfarið náði lögreglan vopninu af honum og handtók hann í framhaldinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira