Fimm konur með barn í fangelsi 24. júlí 2004 00:01
Fanta Silla, sem fékk fimm ára dóm fyrir e-töflusmygl, gæti orðið sjötta konan sem tekur barn sitt með sér í fangelsi hér á landi síðan Kvennafangelsið í Kópavogi var tekið í notkun fyrir fimmtán árum. Börnin geta búið þar hjá mæðrum sínum til tveggja ára aldurs. Fanta Sillah, barnshafandi kona frá Síerra Leóne, var dæmd í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær en hún var tekin í Leifsstöð með um 5 þúsund e-töflur í bakpoka. Sillah er nú á sjúkrahúsi vegna óþæginda í meðgöngu og þarf hugsanlega að dveljast þar fram að fæðingu barnsins í október. Fyrir á hún ungt barn sem er í umsjá ættingja í Síerra Leóne og fimm ára barn sem er í umsjá hollenskra barnaverndaryfirvalda. Líklegt er að hún afpláni refsingu sína í Kvennafangelsinu í Kópavogi þó til greina komi að hún taki út refsingu sína í Hollandi. Í fangelsinu er allt til reiðu til að taka á móti Sillah og barninu hennar. Sigríður Jónasdóttir varðstjóri segir allan búnað, s.s. barnarúm og skiptiborð, vera í fangelsinu enda hafi fimm konur afplánað dóma í fangelsinu með börn frá því það tók til starfa árið 1989. Börnin voru allt frá því að vera nýfædd og upp að tveggja ára aldri. Þrjár af þessum konum fæddu börn sín meðan þær voru í afplánun. Ekki er talið æskilegt að börn dvelji í fangelsum lengur en til tveggja ára aldurs að hámarki, en hvert tilfelli er metið fyrir sig. Myndin er af Kvennafangelsinu í Kópavogi.
Fréttir Innlent Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira