Siglingaverndarlög kosta offjár 24. júlí 2004 00:01
Ný lög um siglingavernd, sem tóku gildi 1. júlí sl., kosta þjóðarbúið hundruð milljóna króna. Þar af leggst margra milljóna kostnaður á hverja höfn vegna þáttar hafnarverndar í lögunum. Fréttavefur Suðurlands greinir frá þessu. Í Þorlákshöfn voru ætlaðar 2,5 milljónir króna til hafnarverndarinnar á þessu ári en upphæðin verður nokkru hærri og aðgerðir til að uppfylla kröfur hafnarverndar munu auk þess hækka rekstrarkostnað hafnarinnar. Hafnirnar eiga að innheimta viðbótargjald af þeim skipum sem falla undir lögin. Forsvarsmenn margra hafna eru ekki sáttir við þessi lög og þá fyrirhöfn og kostnað sem lagður er á hafnarsjóðina. Benda þeir á að hér sé um stóraukna löggæslu að ræða, sem eðlilegt sé að greidd sé úr dómsmálaráðuneytinu og framkvæmd af lögreglu og tollayfirvöldum, en ekki af hafnarstarfsmönnum. Lög þessi ná yfir öll farþegaskip og öll flutningaskip sem eru 500 brúttótonn eða stærri og eru sett samkvæmt ákvæðum alþjóðasamþykktar um öryggi mannslífa á hafinu auk alþjóðakóða um skipa- og hafnavernd, eftir að Bandaríkin komu reglunum í gegn þar. Þau eiga að fela í sér forvarnir til að tryggja vernd skipa, áhafna, farþega, farms og hafnaraðstöðu gegn hvers kyns ógn af hryðjuverkum eða öðrum ólögmætum aðgerðum. Öll skip í millilandasiglingum sem falla undir þessar reglur mega einungis koma til hafna sem uppfylla reglurnar. Í Þorlákshöfn er búið að setja upp girðingar sem eru færanlegar að hluta við þá hafnarbakka sem þessi skip geta lagst við. Auk fasts kostnaðar við slíkt kemur aukinn rekstrarkostnaður vegna varðstöðu meðan þessi skip eru í höfn og vegna námskeiða sem starfsmenn hafnarinnar þurfa að sækja. Indriði Kristinsson, hafnarstjóri í Þorlákshöfn, segir ekki vera búið að ákveða hvaða viðbótargjöld verði lögð á útgerðir þeirra skipa sem lögin nái yfir. „Það eru alls konar reglur hérna,“ segir Indriði. „Hér eiga allir að ganga með nafnspjöld og við eigum strangt til tekið að krefja menn sem við gjörþekkjum um skilríki. Þetta getur auðveldlega skapað leiðindi í höfnum sem eru með blandaða starfsemi á sama svæðinu,“ segir Indriði Kristinsson.
Fréttir Innlent Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira