Myndi enda í þrátefli 23. júlí 2004 00:01
Forseti Íslands getur knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu þótt Alþingi hafi fellt fjölmiðlalögin úr gildi, að mati Sigurðar Líndals, lagaprófessors. Sú ákvörðun myndi þó enda í þrátefli með ófyrirsjáanlegum endi. Alþingi samþykkti í gær að fella brott fjölmiðlalögin sem Ólafur Ragnar vísaði til þjóðaratkvæðagreiðslu. Sigurður Líndal lagaprófessor viðurkennir að sá gjörningur sé umdeilanlegar, nú þegar þjóðin hafi málið í sínum höndum, en segir þó engan grundvallarmun vera á því hvort þjóðin eða þingið fellir lögin úr gildi. Það sé þó engan veginn hægt að líta svo á að þjóðin hefði fellt lögin við atkvæðagreiðslu. Sigurður segir að sjálfsagt hefðu margir viljað ganga til kosninga og kjósa með lögunum og ef réttur hafi verið brotinn á einhverjum, þá sé það fyrst og fremst á þeim einstaklingum. Þó megi kannski segja að þeir ættu að geta sætt sig við að lögin séu skoðuð nánar og víðtækari samstöðu leitað. Samþykkt Alþingis ætti því að sleppa. Eins og hver önnur lög fer nýjasta útgáfa fjölmiðlafrumvarpsins til forseta til undirritunar. Vissulega gæti forsetinn ákveðið að neita að samþykkja nýju lögin, sem fella þau eldri úr gildi, og þar með knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu um þau eldri. Við látum liggja milli hluta hvernig þeirri leikfléttu myndi lykta. Þau sjónarmið hafa þó heyrst að það sé skylda forseta að neita því að skrifa undir nýju lögin; ákvörðunarrétturinn liggi hjá þjóðinni og samþykki Ólafur Ragnar nýju lögin, brjóti hann gegn stjórnarskrá. Sigurður segir þá sem harðastir séu í þeirri afstöðu kynnu að líta svo á. Hann vonar samt að sanngjarnir menn í þeim hópi geti fallist á að þetta sé ekki stórvægilegt brot. Sigurði finnst þetta líkjast því að ganga yfir götu á rauðu ljósi þegar enginn bíll er nálægur. Aðspurður hvað gerist ef forseti undirritar ekki lögin segir Sigurður að þá fari lögin í dóm þjóðarinnar. Ef þau yrðu svo felld þar myndu hin eldri lög, sem nú hafa svokallað „bráðabirgðagildi“, aftur komast í gildi. Úr því yrði þannig endalaust þrátefli að sögn Sigurðar.
Fréttir Innlent Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglinn í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Sjá meira