Innlent

Verðhækkun Flugfélags Íslands

Almenn fargjöld Flugfélags Íslands í innanlandsflugi hækka um þrjú prósent að meðaltali þann 2. ágúst. Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri flugfélagsins, segir miklar hækkanir á eldsneyti hafi valdið verulegum hækkunum á kostnaði félagsins. Jón segir hækkanir flugfélagsins þær fyrstu um tveggja ára skeið. Bíða hafi átt þar til olíuverð lækkaði en ekkert útlit sé til þess. "Við getum ekki setið lengur og verðum að láta undan þessu," segir Jón Hækkun fargjaldanna nemur um 200 krónum að meðaltali en netfargjöld verða áfram óháð fastri verðskrá flugfélagsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×