Innlent

Björgunarsveitarmenn leita við Vog

Tuttugu björgunarsveitarmenn leita nú Eiríks Arnar Stefánssonar sem sást síðast við sjúkrastöðina Vog 5. júlí síðastliðinn. Leit lögreglu að honum hefur enn engan árangur borið og var aðstoðar Landsbjargar óskað í dag. Björgunarsveitarmennirnir munu leita í nágrenni Vogs til að byrja með. Eiríkur er 48 ára, 186 cm á hæð, með stuttklippt, dökkbrúnt hár sem farið er að grána, þéttvaxinn, frekar stórbeinóttur og mjög brúnn á hörund. Hann var klæddur í gallajakka, gallaskyrtu, gallabuxur og svarta tréklossa þegar síðast sást til hans. Myndin er úr myndasafni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×