Kárahnjúkabók Ómars komin út 22. júlí 2004 00:01
Á meðan sumir segja Kárahnjúkavirkjun stærsta og jákvæðasta hagsmunamál Íslendinga, segja aðrir hana stærsta umhverfishneyksli Evrópu. Þessi ólíku sjónarmið eru kynnt í nýrri bók Ómars Ragnarssonar, Kárahnjúkar - með og á móti, en verkið var kynnt á heldur óvenjulegum blaðamannafundi. Strax var ljóst að ekki væri um neina hefðbundna bókakynningu að ræða. Fjölmiðlafólki var smalað upp í flugvélar og stefnan tekin austur að Kárahnjúkum þar sem Ómar bauð upp á útsýnisflug. Virkjanaframkvæmdirnar eru tilkomumiklar, stærsti minnisvarði sem nokkur kynslóð Íslendinga hefur reist um sjálfa sig. Í ferðinni vildi Ómar sýna fram á mikilfengleik virkjunarinnar og náttúrunnar, öflin sem tekist hefur verið á um í einu mesta hitamáli síðari tíma. Vissulega er svæðið tilkomumikið séð úr lofti og ekki er það síðra eftir lendingu. Bókarkynningin fór svo fram á Kringilsárrana sem var vel við hæfi því það svæði fer undir 80 metra djúpt lón og ekki hafa margir aðrir komið þangað undanfarin á en hreindýr, gæs, refur og Ómar Ragnarsson. Náttúran hefur afgirt Kringilsárrana með tveimur ám og jökli og því er einungis hægt að komast þangað með flugi. Núlifandi Íslendingar eru því þeir einu sem hafa tækifæri til að berja svæðið augum. Fórðungur þess verður kominn undir vatn þegar komandi kynslóðir vaxa úr grasi. Ómar hefur varið ári í ritstörf og tæpum áratug í rannsóknarvinnu. Þrátt fyrir að geta talist sá Íslendingur sem hefur hvað mesta þekkingu á staðháttum við Kárahnjúka gekk það ekki þrautalaust fyrir sig að fá ritverkið útgefið. Ómar segist hafa upplifað það sem og með sjónvarpsmynd sína um svæðið; mönnum þótti þetta hættulegt, viðkvæmt og að umfjöllunin gæti skaðað Ómar og þá sem stæðu að þessu. Ómari var bent á að tala við tvær bókaútgáfur sem grættt hefðu í síðustu jólavertíð og ættu því kannski efni á útgáfu bókarinnar. Önnur útgáfan var JPV-forlag og Jóhann Páll, útgáfustjóri þess, var reiðubúinn í útgáfuna. Aðspurður hvað drífi sig áfram í þessu, t.d. í ljósi þess að menn verði ekki ríkir af svona verkum, segir Ómar það vera hið sama og drífi alla fjölmiðlamenn áfram: að kanna málin til botns og skila af sér eins góðri verki og hægt sé. Í bókinni er að finna bæði með- og mótrök fyrir virkjanaframvkæmdum við Kárahnjúka. Öllum röksemdum og sjónarmiðum er gert jafnhátt undir höfði, hvort sem litið er á virkjanaframvkæmdirnar sem Landvinninga nýrrar aldar eða mesta afsal og missi lands í Íslandssögunni. Ómar segir að í bókinni sé efast um allt, spurt um allt og reynt að svara öllu.
Fréttir Innlent Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Fleiri fréttir Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Sjá meira