Verkfall háseta hafrannsóknarskipa 22. júlí 2004 00:01
Verkfall háseta skipa Hafrannsóknarstofnunar hefst klukkan fjögur á mánudag nái Sjómannafélag Reykjavíkur og samningsnefnd fjármálaráðuneytisins ekki að semja á fundi sama dag. Bitbeinið er sjómannaafsláttur hásetanna. Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, segir félagið vilja að kjarasamningurinn falli úr gildi eða verði uppsegjanlegur nemi stjórnvöld sjómannaafsláttinn úr gildi. Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, segir að viðræðurnar strandi á þessu atriði. "Þeim hefur verið boðið að inni í samningnum verði bókun um að verði samið um það í kjarasamningum sjómanna á almennum markaði að afnám sjómannaafsláttar leiði til þess að kjarasamningar verði uppsegjanlegir skuli það sama gilda um þennan samning. Ríkið telur eðlilegt að stefnan varðandi atriði sem þetta sé mörkuð í viðræðum aðila á hinum almenna vinnumarkaði en er tilbúið að fallast á að niðurstaða sem þar fæst gildi einnig um sjómenn sem starfa hjá ríkinu." Jónas segir slíka bókun ekki hafa gildi. "Við erum að semja beint við fjármálaráðherra. Hann kom með frumvarp um skerðingu sjómannaafsláttar. Þess vegna viljum við semja beint við hann um að samningurinn verði laus eða uppsegjanlegur ef frumvarpið nái fram að ganga." Næsti fundur samningsaðila er á mánudaginn klukkan hálf ellefu og því fimm og hálf klukkustund til stefnu. Jónas segir það ekki knappan tíma. "Það þarf ekki nema eina mínútu. Þetta er ekkert mál til að sitja yfir. Þetta er aðeins spurning um já eða nei." Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar, segir það órætt hvernig staðið verði að heimkomu skipanna komi til verkfalls. Hann voni að deilan leysist. "Við erum alltaf í mikilvægum rannsóknarleiðöngrum og auðvitað er það bagalegt að geta ekki unnið eftir þeim áætlunum sem við setjum okkur."
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira