Enn lekur olía úr Guðrúnu 22. júlí 2004 00:01
Olía er aftur farin að leka upp á yfirborðið úr fjölveiðiskipinu Guðrúnu Gísladóttur, sem liggur á hafsbotni við Noreg, að því er greint er frá í norska blaðinu Lofotposten í dag. Þar segir að þrátt fyrir að olía hafi verð tæmd úr skipinu í byrjun júlí sé hún á ný tekin að berast upp á hafflötinn úr skipinu. Í byrjun júlí lýsti fyrirtækið Riise Underwater Engineering því yfir að tekist hefði að tæma alla olíu úr skipinu. Fyrirtækið náði þá um 80 tonnum af olíu úr því. Þegar skipiðð sökk, 19. júní árið 2002, voru um 400 tonna olíufarmur í því og lak bróðurparturinn í hafið. Í gær staðfesti Arild Emilsen, slökkviliðsstjóri á svæðinu, að ekki sé búið að ná allri olíu úr skipinu. Hann skoðaði aðstæður á strandstað og sá þar merki um díselolíu frá skipinu. Lekinn uppgötvaðist á þriðjudagskvöld af konu sem var við veiðar nálægt strandstaðnum. Hún tók sýni úr sjónum og sýndi slökkviliðsstjóranum það. „Ég er ekki í vafa um að díselolían er úr Guðrúnu Gísladóttur. Ekki er um þykkt lag af olíu að ræða en þunn olíubrák er dreifð yfir nokkurt svæði,“ sagði Emilsen og bætti við að þetta væri umhverfisvandamál. Um 900 tonna síldarfarmur er enn um borð í skipinu. Emilsen segist þó viss um að vökvinn á haffletinum stafi ekki af síldinni heldur sé um díselolíu að ræða. Norsku strandgæslunni verður tilkynnt um málið í dag að því er fram kemur í Lofotposten. Blaðið náði ekki sambandi við Riise Underwater Engineering í gær. Fréttavefur Morgunblaðsins greinir frá.
Fréttir Innlent Mest lesið Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Innlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Innlent Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Erlent Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Innlent Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Veður Fleiri fréttir Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sjá meira