Rannsókn á áhrifum háspennulína 21. júlí 2004 00:01
Drífa Hjartardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill að heilbrigðisyfirvöld rannsaki möguleg áhrif háspennulína, spennistöðva og fjarskiptamastra á mannslíkamann. Hún er ásamt Sigríði Önnu Þórðardóttur, verðandi umhverfisráðherra, og fleirum, flutningsmaður þingsályktunartillögu um málið. Þetta er í fjórða skipti sem Drífa og fleiri þingmenn eru flutningsmenn þingsályktunartillögu um þetta mál. Samkvæmt henni yrði Alþingi falið að rannsaka á næstu tíu árum möguleg áhrif af völdum háspennulína og sérstaklega með tilliti til nýgengis krabbameins. Í greinargerð með tillögunni er bent á að erlendar rannsóknir leiði æ meiri líkur að því að rafsegulssvið hvers konar geti haft alvarleg áhrif á heilsu og líðan fólks og jafnvel valdið krabbameini. Varað er við því að háspennulínur og möstur séu t.a.m. of nálægt heimilum og barnaheimilum. Landsvirkjun hefur fengið heimild til að leggja rafmagnslínur austur á Héraði vegna Kárahnjúkavirkjunar. Einn þeirra fimm bænda sem fyrirtækið hefur ekki náð samkomulagi við, vegna lagningar línu á landi hans, sagði í fréttum Stöðvar tvö nýverið að íbúðarhús hans yrði í innan við 150 metra fjarlægð frá línunni og í því fælist aðaltjónið. Drífu Hjartardóttur skilst að mjög erfitt sé að gera faraldsfræðilega rannsókn í líkingu við þá sem hún hafi farið fram á og því hefur hún hug á að breyta tillögu sinni í haust, m.a. með því að skipta henni niður í fjórar tillögur. Drífa segir hins vegar að ef möstrin eru of nálægt híbýlum manna þá verði einfaldlega að taka tillit til þess.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira