Innlent

Forsætisráðherra í skurðaðgerð

Davíð Oddsson forsætisráðherra gekk undir aðgerð í gær vegna staðbundins æxli á hægra nýra. Davíð var lagður inn á Landspítalann við Hringbraut aðfaranótt miðvikudags vegna gallblöðrubólgu og kom meinið í ljós við rannsókn. Gallblaðra forsætisráðherra var fjarlægð sem og nýra hans í skurðaðgerð, en aðgerðin gekk að óskum. Halldór Ásgrímsson gegnir störfum forsætisráðherra í fjarveru Davíðs, en ekki er ljóst hvenær hann snýr aftur til starfa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×