Innlent

Mannlaus strætisvagn fór útaf

Mannlaus strætisvagn fór af stað frá biðstöðinni við Hamraborg í Kópavogi um sexleytið í gærdag og rann stjórnlaus áfram. Hann fór meðal annars yfir hringtorg og yfir á Borgarholtsbraut hvar hann lauk ferð sinni með því að gera út af á golfvöll bak við Gerðarsafn. Engar skemmdir urðu en bíll var fenginn til að draga strætisvagninn af golfvellinum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Kópavogi gleymdi bílstjórinn að setja vagninn í handbremsu með fyrrgreindum afleiðingum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×