Innlent

Sakar son um að stela Svarta dauða

"Sonur minn tók þetta örlagaríka skref. Hann sveik mig," segir Valgeir Sigurðsson, veitingamaður, sem þekktur er fyrir að framleiða Svarta dauða. Hann hefur stefnt syni sínum, Sigurði Tómasi Valgeirssyni, fyrir að hafa haft af sér ævistarfið með ólöglegum hætti. Valgeir stofnaði og rak fyrirtækið Black Death sem framleiddi vín með sama nafni. Eftir að Valgeir lenti í alvarlegu bílslysi komst sonur hans yfir handhafabréfin í fyrirtækinu. Hann færði þau á annað fyrirtæki á Bahamaeyjum og hafði Black Death merkið og einkaleyfið af föður sínum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×