Innlent

Davíð gekkst undir aðgerð

Forsætisráðuneytið sendi frá sér yfirlýsingu rétt áðan þar sem segir að Davíð Oddsson forsætisráðherra hafi verið lagður inn á Landspítalann við Hringbraut síðastliðna nótt vegna gallblöðrubólgu. Við rannsókn kom í ljós staðbundið æxli í hægra nýra og gekkst forsætisráðherra undir aðgerð þar sem gallblaðran og hægra nýra voru fjarlægð. Aðgerðin gekk að óskum samkvæmt yfirlýsingu ráðuneytisins. Forsætisráðuneyti sendi tilkynningu til fjölmiðla í morgun þar sem fram koma að Davíð hafi verið fluttur á Landspítalann í nótt með verki í kviðarholi. Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður Davíðs, sagði í morgun að tilkynning yrði send til fjölmiðla um leið og nýjar upplýsingar bærust frá spítalanum. Ólafur Davíðsson ráðuneytisstjóri sagði að verkirnir hafi verið miklir og að Davíð hafi undirgengist ýmsar rannsóknir frá því hann var lagður inn um fjögurleytið í nótt. Við upphaf þingfundar í dag sendi Halldór Blöndal, forseti Alþingis, forsætisráðherra bestu kveðjur og ósk um góðan bata. Hann gat þess að Davíð gæti ekki tekið þátt í þingstörfum á næstunni og því tæki Ásta Möller sæti hans á þingi. Þingmenn færðu forsætisráðherra einnig óskir um góðan bata við upphaf þingræða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×