Innlent

Hvalveiðiráðið fundar fram á kvöld

Engin niðurstaða hefur fengist á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Sorrento á Ítalíu. Stefán Ásmundsson, formaður íslensku sendinefndarinnar, býst við að fundað verði fram að miðnætti. Tillögur um að leyfa takmarkaðar veiðar í atvinnuskyni bíða þess að verða ræddar enn frekar þar sem aðallega hefur verið rætt um veiðiaðferðir en dýraverndunarsinnar telja þær aðferðir sem nú eru notaðar óásættanlegar. 75 prósent aðildarríkja ráðsins þurfa að styðja tillögur til að þær teljist samþykktar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×