Innlent

Ríkisendurskoðun svarar ráðherra

Ríkisendurskoðun sendi fyrr í dag fjármálaráðherra svar við athugasemdum sem gerðar voru við skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga. Geir H. Haarde fjármálaráðherra gagnrýndi skýrsluna harðlega á dögunum og sagði hana ónákvæma. Í svari Sigurðar Þórðarsonar ríkisendurskoðanda segir að einhverjar villur hafi vissulega verið í skýrslunni en það breyti ekki þeirri staðreynd að allt of margar ríkisstofnanir fari ár eftir ár fram úr heimildum fjárlaga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×