Afturköllun vegna stjórnlagakreppu 20. júlí 2004 00:01
Þrátt fyrir að tilkynnt hafi verið um afturköllun fjölmiðlalaganna segir meirihluti allsherjarefndar í áliti sínu að hann telji að þau standist stjórnarskrá. Synjun forsetans á lögunum hafi leitt til stjórnlagakreppu um túlkun stjórnarskrár. "Þrátt fyrir að reynt hafi verið að ná sem víðtækastri sátt og samstöðu um málið hefur minnihlutinn ekki verið til viðræðu um slíkt. Af þeirri umræðu sem átt hefur sér stað frá því á vordögum er ljóst að enginn áhugi er á því á vettvangi stjórnarandstöðunnar að setja eignarhaldi á fjölmiðlum skorður þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar," segir jafnframt í nefndarálitinu. Jónína Bjartmarz, þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður allsherjarnefndar, sagðist líta á niðurstöðuna sem sáttaleið. "Miðað við þann ágreining sem hefur verið síðustu vikurnar, ekki bara um efni þessa frumvarps heldur líka um þessa stjórnskipulegu spurningar sem hafa komið upp eftir að þetta frumvarp ríkisstjórnarinnar var lagt fram þá er ég mjög sátt við þessa niðurstöðu. Það má segja að það að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu væri kannski lýðræðislegri leið en hún hefði svo sem skapað aukna sundrung meðal þjóðarinnar sama hvernig hún hefði farið," sagði Jónína. Bjarni Benediktsson, formaður nefndarinnar, sagðist "eftir atvikum" sáttur við niðurstöðuna. "Það er svo sem margt í ferli málsins undanfarnar vikur sem maður hefði svo sem séð fyrir sér öðruvísi," sagði Bjarni. Meirihluti nefndarinnar tekur jafnframt afstöðu til fjölmiðlalaganna sjálfra og segir það "ótvíræða niðurstöðu" sína að efnislega standist þau stjórnarskrána. "Með vísan til þess að með frumvarpi þessu eru skilyrði um heimilt eignarhald á fjölmiðlum rýmkuð enn frekar og gildistöku frestað um rúmlega þrjú ár telur meirihlutinn engan vafa leika á því að efnislega stæðust ákvæði tilvitnaðra greina frumvarpsins ákvæði VII. kafla stjórnarskrárinnar," segir í álitinu. Beiting forseta Íslands á synjunarvaldi samkvæmt 26. grein stjórnarskrárinnar hefur leitt til stjórnlagakreppu um túlkun einstakra ákvæða stjórnarskrár, meðal annars um valdheimildir Alþingis, að því er fram kemur í nefndaráliti sem meirihluti allsherjarnefndar afgreiddi í gær.
Fréttir Innlent Mest lesið Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Innlent „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Innlent Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Erlent Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Innlent Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni Innlent „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Innlent Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Innlent Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna Innlent Fleiri fréttir Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Algjör samstaða sé um að hækka bætur Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Bíða enn gagna mánuði frá upphafi rannsóknar Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Framlag Íslands mun minna en annarra Norðurlanda Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Sjá meira