Hallinn meiri en leyfilegt er 20. júlí 2004 00:01
Hallinn á rekstri Ríkisendurskoðunar í fyrra var meiri en leyfilegt er samkvæmt reglum fjármálaráðuneytisins. Sagt var frá því í fréttum Stöðvar 2 í gær að Ríkisendurskoðun fór 43 milljónir króna fram úr fjárlögum í fyrra, á sama tíma og embættið gagnrýndi aðrar ríkisstofnanir fyrir agaleysi í fjármálum. Ríkisendurskoðandi benti á að hann hafi átt 27 milljónir til góða frá árinu á undan. Hallinn er samt sem áður 15 milljónir. 20% stofnana voru með halla í fyrra sem nemur meira en fjórum prósentum af fjárheimild ársins, en það eru þau viðmiðunarmörk sem settar eru í reglum frá fjármálaráðuneytinu. Ríkisendurskoðun sagði í skýrslu sinni að það sé til marks um mikið agaleysi að framkvæmd fjárlaga sé með þessum hætti ár eftir ár. Í nágrannalöndum okkar væru fjárlög virt og það heyrir til undantekninga að stofnanir fari fram úr heimildum. En í fyrra fór Ríkisendurskoðun sjálf fór yfir þessi mörk, með halla sem nemur tæpum fimm prósentum af fjárheimildum ársins. Í reglum fjármálaráðuneytisins segir að þegar svo fer muni ráðuneytið fara yfir skýringar forstöðumannsins, enda beri hann ábyrgð samkvæmt lögum. Komi í ljós að forstöðumaður hafi gerst brotlegur við starfsskyldur sínar er hægt að veita honum lausn frá störfum um stundarsakir, eða veita honum áminningu. Þegar ríkisendurskoðandi gagnrýndi aðrar stofnanir fyrir að fara fram úr, benti hann einmitt á þessa reglu. Sigurður Þórðarson, ríkisendurskoðandi sagði að ekki væri alltaf hægt að stemma hlutina nákvæmlega af á einu ári. Strax hafi verið gripið til niðurskurðar til að mæta hallanum. Auk þess hafi þetta ekki verið viðvarandi halli ár eftir ár eins og hann hefði gagnrýnt aðrar stofnanir fyrir, heldur væri þetta í fyrsta skipti sem embættið fór yfir, síðan 1987.
Fréttir Innlent Mest lesið Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Innlent „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Innlent Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Erlent Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Innlent Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni Innlent „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Innlent Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Innlent Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna Innlent Fleiri fréttir Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Algjör samstaða sé um að hækka bætur Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Bíða enn gagna mánuði frá upphafi rannsóknar Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Framlag Íslands mun minna en annarra Norðurlanda Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Sjá meira