Innlent

Símar lögreglunnar í nýtt kerfi

Lögreglan í Reykjavík tekur í notkun nýtt Centrexkerfi símkerfi frá Símanum og færast allir símar lögregluembættisins inn í það kerfi.  Með þessu hefur lögreglan sameinað öll símanúmer og síma embættisins í eitt kerfi, sem fær nýtt símanúmer, 444 1000. Centrex er sýndareinkasímstöð sem líkir eftir einkasímstöð og býður sambærilega möguleika á sérþjónustu og almennt þekkist á markaðnum fyrir einkasímkerfi. Með þessu nýja kerfi getur Lögreglan í Reykjavík sett öll símanúmer hverfastöðva, farsímatækja og raun alla síma embættisins inn í öflugt innanhúss símkerfi. Nýja kerfið tryggir að öll símanúmer og símtæki, þ.m.t. GSM-tæki eru í beinu sambandi við höfuðstöðvarnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×