Erfiðar aðstæður fæla fólk frá 18. júlí 2004 00:01
Vinna við stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar og göng því tengdu er langt komin. Í kynnisferð sem Landsvirkjun bauð fjölmiðlum landsins í fyrir helgi kom fram að lokið hefur verið við um 75 prósent af göngum tengdum stöðvarhúsinu og ætlað að þeim hluta verksins ljúki í haust. Fosskraft JV sér um þann hluta verksins. Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo sér hins vegar um gerð aðrennslis- og veituganga úr lónum og á þeirri gangagerð að vera lokið í byrjun árs 2007. Impregilo er stærsti einstaki verktakinn sem vinnur við gerð Kárahnjúkavirkjunar, en fyrirtækið sér einnig um smíði aðalstíflunnar við Fremri Kárahnjúk. Á blaðamannafundi sem haldinn var kom fram að nokkrar tafir hafa orðið á vinnu við gerð undirstöðu stíflunnar vegna gljúps jarðvegar og sprungna. Gianni Porta, yfirmaður framkvæmda hjá Impregilo, segist þess hins vegar fullviss að takist að vinna upp glataðan tíma. "Upphaf framkvæmda er alltaf langerfiðasti tíminn," sagði hann og dró ekki úr að hér hafi nokkrir hlutir komið þeim Impregilo mönnum á óvart. Einna helst sagði hann þó veðurfar og aðstæður síðasta vetur hafa verið erfiðar. "Rokið er langverst og alveg ótrúlegt," sagði hann og bætti við að þekking á aðstæðum og veðurfari kynni að hluta til að skýra hvers vegna Íslendingar sæktu ekki í meira mæli í að vinna við stíflugerðina við Kárahnjúka. Hann sagði þó að hjá Impregilo væri hlutfall erlendra og innlendra starfsmanna þó í takt við þær áætlanir sem gerðar höfðu verið. "Íslendingar sem hjá okkur vinna eru um 20 prósent af heildarfjölda starfsmanna," sagði hann. Veðurfar og aðstæður sagði hann að gerðu mannahald dálítið erfiðara en ella og hefði það áhrif í starfsmannaveltu hjá öllum þjóðernum sem hjá fyrirtækinu störfuðu. "Minnst áhrif eru greinanleg hjá starfsfólki frá þriðjaheimslöndum. Við erum með fólk sem starfað hefur við ámóta framkvæmdir í Patagóníu í Suður-Argentínu við sambærileg veðurfarsskilyrði. Svo líka fólk sem vann þar sem ég var áður við fyrra verkefni í Mongólíu. Þegar blæs þá blæs og þegar frost er 35 gráður, þá er það bara svoleiðis. Þetta er spurning um að hafa fólk sem hefur þjálfun í að vinna við erfiðar aðstæður," sagði hann, en bætti því líka við að Impregilo væri reynslunni ríkara eftir síðasta vetur og vissu nú að hverju væri gengið þegar vetrar. Á fundi Landsvirkjunar með fjölmiðlafólki og verktökum sl. fimmtudag kom fram að hlutfall innlendra starfsmanna við heildarframkvæmdir vegna virkjunarinnar sé ívið lægra en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir. Þá er ekki einungis horft til aðalstíflunnar við mynni Dimmugljúfra heldur einnig smíði stöðvarhúss og tengdra jarðganga, auk tveggja minni stíflna sem Suðurverk sér um og nefnast Sauðárdalsstífla og Desjarstífla. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar sagði að hlutfallið væri nálægt því að vera 30 Íslendingar á móti hverjum 70 útlendingum, í stað 40 á móti 60 eins og Landsvirkjun hafði áætlað í upphafi. "Menn geta gert áætlanir, en endanlegt hlutfall ræðst bara af stöðunni á vinnumarkaði," sagði Sigurður Arnalds, verkfræðingur og kynningarfulltrúi Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar. Gianni Porta sagði að kaup og kjör væru í samræmi við kjarasamninga hér á landi, þegar hann var spurður að því hvort launakjör væru þannig að þau gætu laðað að Íslendinga til starfa hjá Impregilo.
Fréttir Innlent Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Fleiri fréttir „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Sjá meira