Innlent

Stúlka datt af baki

Ung stúlka slasaðist er hún datt af hestbaki síðdegis í gær í Heydal í Mjóafirði í Ísafjarðardjúpi. Stúlkan var flutt með sjúkraflutningi á Landspítala-háskólasjúkrahús í Reykjavík og þjáðist af höfuðmeiðslum. Stúlkan gekkst undir nokkrar rannsóknir á sjúkrahúsinu og átti ennþá eftir að fá niðurstöður úr þeim þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild þá virðist hún ekki vera alvarlega slösuð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×