Innlent

Kafarar fengnir til leitar

Kafarar verða að öllum líkindum fengnir í dag til þess að leita að Sri Rahmawati, 33 ára gamalli konu sem saknað hefur verið í rúmar tvær vikur, að sögn Sigurbjörns Víðis Eggertssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns í Reykjavík. Leitin beinist einna helst að malarnámu á Geldinganesi. Leitað hefur verið án árangurs í námunni en fastlega er búist við því að á morgun leiti kafarar við nærliggjandi bryggju að sögn Sigurbjörns Víðis. Þá hefur lögregla notið aðstoðar þyrlu við leitina en um helgina voru þó einungis lögreglumenn við leit. Fyrrum sambýlismaður konunnar er grunaður um að eiga aðild að hvarfi hennar en því hefur hann ekki játað. Maðurinn situr í gæsluvarðhaldi og er búist við að gæsluvarðhaldsúrskurður verði framlengdur eftir að hann rennur út á miðvikudag. Niðurstöðu úr erfðaefnisrannsókn á blóði sem fannst í íbúð og bíl mannsins er líklega að vænta einhvern næstu daga. Þá staðfesti Sigurbjörn Víðir að hvorki sími né greiðslukort konunnar hefur verið notað síðan snemma morguns þann fjórða júlí þegar síðast spurðist til hennar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×